Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna
Fréttablaðið

 forsida

sumarblad2013 

skyrsla_stjornar


  

        virk_logo





Nýjustu fréttir
 
16. maí 2013

endurskin1                                                                              Efling stéttarfélag stoltur aðili að verkefninu

„Allir öruggir heim“

-endurskinsvesti fyrir 6 ára börn


Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við Alcoa Fjarðarál, Dynjanda ehf, EFLA verkfræðistofu, Eflingu stéttafélag, HB Granda, Isavia, Landsvirkjun, Neyðarlínuna, Tryggingamiðstöðina, Umferðarstofu og Þekkingu, gáfu á dögunum öllum skólum á landinu endurskinsvesti til að nota í vettvangsferðum barna í 1. bekk. Um 4500 börn eru í árganginum á landinu öllu.  Vestin eru af vandaðri gerð og er það von þeirra sem að átakinu standa að þau nýtist skólunum næstu árin.

Efling stéttarfélag er stoltur aðili að verkefninu og er þema þess „Allir öruggir heim“ því öll eigum við rétt á því að koma örugg heim og  á það ekki síst við um þau sem eru að hefja skólagöngu sína.



15. maí 2013

trun_fundur

Skapandi morgunn

Með trúnaðarmönnum Eflingar

Það var virkilega skapandi andi á morgunfundi trúnaðarmanna Eflingar á Grand Hótel í gær  þegar hátt í hundrað trúnaðarmenn Eflingar komu saman til að ræða hvernig hægt væri að efla starf trúnaðarmanna í félaginu. Eftir fjörugar umræður í hópstarfi  skutu trúnaðarmenn fram fjölmörgum góðum hugmyndum í loftið. Þeir vilja upprifjunarnám fyrir reynda trúnaðarmenn, aukin samskipti sín á milli og við félagið, meira fræðslustarf og heimsóknir á vinnustaði. Þá kom fram sú ósk að forystu félagsins hlusti vel eftir vilja trúnaðarmanna  við undirbúning næstu kjarasamninga. Þetta er aðeins hluti þeirra fjölmörgu hugmynda sem ræddar voru á fundinum.



13. maí 2013

efling_hus_rammi
Aðalfundur Eflingar samþykkir einróma

Stækkun Sætúns 1

Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags samþykkti á dögunum einróma að heimila stækkun Sætúns 1 en viðbygging hússins hefur verið á dagskrá félagsins nú um nokkurra ára skeið. Heimilað hefur verið að byggja fjögurra hæða viðbyggingu við norðurenda suðurhúss og eina hæð ofan á norðurhús auk nokkurra annarra minni háttar breytinga sem stækka húsið. Sigurður Bessason, formaður Eflingar sagði á fundinum að það væri afar knýjandi að stækka húsnæði Eflingar vegna aukinnar starfsemi félagsins, bæði starfsendurhæfingar og annarrar starfsemi sem koma þarf fyrir í húsinu. Um 1000 fermetra aukning verður á húsnæði Eflingar og kostnaður félagsins af stækkuninni nemur um 352 milljónir króna sem hefur lítil áhrif á fjárhagsstöðu Eflingar. Fram hefur komið hjá byggingaraðilum hússins að viðbygging Sætúns 1 sé mjög hagkvæm á þessum tíma og mjög heppilegt sé að skapa atvinnu við byggingastarfsemi sem hefur verið í mikilli lægð undanfarin ár. Auk Eflingar eru Gildi lífeyrissjóður og ASÍ eignaraðilar hússins og byggingaraðilar að viðbyggingunni. Framkvæmdir munu hefjast í haust.


07. maí 2013
sjukrasjodur

Miklar hækkanir í sjúkrasjóði

Á aðalfundi 2013 þann 30. apríl s.l. voru samþykktar umfangsmiklar breytingar í Sjúkrasjði Eflingar sem fela m.a. í sér hækkanir bæði á hámarksupphæðum dag-peninga og dánarbótum, auk þess sem fjárhæðir styrkja verða hækkaðar. Ástæða þess að hægt er að leggja til slíkar hækkanir má að mestu þakka góðri stjórn og jákvæðnum rekstri sjóðsins síðustu ár. Hámarksgreiðslur dagpeninga hækka um allt að 14%.


02. maí 2013

sumarhus

Orlofshús

Laus hús í sumar

Hér má sjá laus orlofshús í sumar.


30. apríl 2013
1mai2007b_edited-1

1. maí í Reykjavík

Baráttufundur á Ingólfstorgi

Baráttufundur verður haldinn á Ingólfstorgi miðvikudaginn 1. maí á baráttudegi launafólks. Kynnir verður Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR og ræðumenn verða þau VR og RSÍ formaður frá ASÍ en ræðumaður frá BSRB verður. Safnast verður saman neðan við Hlemm á Laugavegi á horni Snorrabrautar um kl. 13.00 en gangan leggur af stað kl. 13.30. Að loknum hátíðarhöldunum býður Efling-stéttarfélag upp á kaffi í Valsheimilinu að Hlíðarenda -Vodafone höllinni.



30. apríl 2013

adalfundur2008

Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2013

Aðalfundur Eflingar - stéttarfélags 2013 verður haldinn á Grand Hótel þriðjudaginn 30. apríl 2013. Fundurinn hefst kl. 20.00

Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breyting á reglugerð Sjúkrasjóðs
3. Viðbygging við Sætún 1
4. Önnur mál



23. apríl 2013

Stjórnar og trúnaðarráðs Eflingar skorar á ríkisstjórnina

Leiðréttið laun allra umönnunarhópa

Stjórn og trúnaðarráð Eflingar samþykkti einróma á fundi sínum 18. apríl sl að skora á ríkisstórnina að leiðrétta laun allra umönnunarhópa í samræmi við þá stefnu sem stjórnin hefur kynnt í kjölfar sérstakra leiðréttinga til hjúkrunarfræðinga. Ályktunin er meðfylgjandi.


22. apríl 2013

1mai_01

Barnatónleikar Lúðrasveitar verkalýðsins

Komdu og hlustaðu

Lúðrasveit verkalýðsins hefur í áraraðir haldið barnatónleika í Reykjavík. Í tilefni af 60 ára afmæli sveitarinnar verða skemmtilegir barnatónleikar í Hörpu þriðjudaginn 23. apríl kl. 18 þar sem sérstakir gestir verða Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts en þar spila um 60 krakkar. Leikin verða lög úr Mary Poppins og Dýrunum í Hálsaskógi, Ryksugulagið og önnur frábær barnatónlist. Komdu og hlustaðu á yfir 100 hljóðfæraleikara á aldrinum 9-59 ára spila tónlist fyrir börn og barnabörn og hreint út sagt alla!  Engin aðgangseyrir



22. apríl 2013

leikskolalidafundur_a

Ársfundur Faghóps leikskólaliða

Mikil vinna fram undan

Faghópur leikskólaliða í Eflingu-stéttafélagi hélt ársfund sinn mánudaginn 15.apríl 2013. Faghópur leikskólaliða er nú að hefja sitt sjötta starfsár og hefur leikskólaliðum hjá Eflingu fjölgað stöðugt á þessum tíma. Stjórn leikskólaliða var sjálfkjörin á fundinum og fór Aðalbjörg Jóhannesdóttir yfir ársskýrslu leikskólaliða ásamt því að Ingrid Kuhlman hélt vel heppnaðan fyrirlestur um Samþættingu starfs og einkalífs. 



18. apríl 2013

felagslidafundur

Ársfundur Faghóps félagsliða
Mikilvægt að knýja á um löggildingu

Áttundi ársfundur faghóps félagsliða var haldinn 16. apríl síðast liðinn og var stjórnin sjálfkjörin.  Kristín Björnsdóttir las ársskýrslu faghópsins þar sem fram kom að hátt í fjögur hundruð félagsliðar hefðu verið boðaðir á þennan ársfund sem væri til marks um vaxandi hóp félagsliða.  Í ræðu Kristínar kom fram að í maí 2012 hefðu ný lög um heilbrigðisstarfsmenn tekið gildi sem ættu að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur um menntun, kunnáttu og færni heilbrigðisstarfsmanna og starfsheiti þeirra.  Það væri því full ástæða til þess að fylgja því eftir gagnvart félagsliðum með því að knýja á um löggildingu á starfsheiti félagsliða.



08. apríl 2013

Faghópur félagsliða

Ársfundur

Faghópur félagsliða í Eflingu-stéttarfélagi heldur sinn áttunda ársfund þriðjudaginn 16. apríl 2013. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Eflingar Sætúni 1 á 4. hæð og hefst kl. 18:00.


08. apríl 2013

Faghópur leikskólaliða

Ársfundur

Faghópur leikskólaliða í Eflingu-stéttarfélagi heldur ársfund sinn mánudaginn 15. apríl 2013. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Eflingar Sætúni 1 á 4. hæð og hefst kl. 20:00.


08. apríl 2013

Námskeið fyrir atvinnuleitendur

Atvinnuleysi og fjölskyldan

Efling stéttarfélag býður félagsmönnum sínum í atvinnuleit upp á námskeiðið Atvinnuleysi og fjölskyldan miðvikudaginn 17. apríl kl. 13-15 í Sætúni 1 – 4 hæð, 105 Reykjavík. Námskeiðið er félagsmönnum að kostnaðarlausu.


05. apríl 2013

Trúnaðarmenn - námskeið!

Skráning stendur yfir á Trúnaðarmannanámskeið I ( 1.og 2.þrep) sem haldið verður 15. – 19.apríl næstkomandi. Á þessu námskeiði er farið í starf og hlutverk trúnaðarmannsins samkvæmt lögum og samningum ásamt því sem farið er í starfsemi stéttarfélaga, hlutverk þeirra og viðfangsefni.




Vissir þú?




auglysingnamskeidatvinnuleit5





Karl Ó. Karlsson

 
Anna Lilja Sigurðardóttir 

Lögmenn Eflingar-stéttarfélags eru til viðtals á skrifstofu félagsins á þriðjudögum milli kl. 13.00 og 16.00. Það eru lögmennirnir Karl Ó. Karlsson og Anna Lilja Sigurðardóttir  frá lögmannsstofunni  LAG lögmenn  sem eru til aðstoðar. Ekki þarf að panta tíma fyrirfram. Það nægir að mæta á skrifstofuna á þessum tíma.




Á döfinni

Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500  |  fax: 510 7501  |   efling@efling.is