Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna

Sjúkrasjóður Eflingar - stéttarfélags
Undir sjúkrasjóð fellur einnig Fjölskyldu- og styrktarsjóður.

Sjúkrasjóðurinn er félagslegur samtryggingasjóður sjóðfélaga. Markmið sjóðsins er að styrkja sjóðfélaga er missa vinnutekjur eða ígildi þeirra vegna sjúkdóma eða slysa með því að greiða þeim dagpeninga í slysa- og sjúkdómstilfellum.  Ennfremur að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum er snerta öryggi og heilsufar sjóðfélaga.


Fréttir:

mynd_heimasida_umsokn_utfyllt3

Sjúkrasjóður og fræðslusjóðir Eflingar

Útborgun 21. desember 2012

Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 21. desember n.k. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.

Skila þarf gögnum til sjóðsins í síðasta lagi 17. desember næstkomandi til að ná þessari útborgun.

Fyrsti greiðsludagur á nýju ári verður 31. janúar 2013.



frett_16

Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs

Sjúkrasjóður hækkar tekjuviðmið dagpeninga um 15% frá 1. maí 2012

Á aðalfundi Eflingar 26. apríl s.l. voru samþykktar ýmsar breytingar á reglugerð Sjúkrasjóðs. Helstu breytingar voru meðal annars að hámarkstekjuviðmið við greiðslu dagpeninga þeirra sem hafa verið sjóðfélagar Sjúkrasjóðs lengur en  5 ár samfellt hækkaði frá 1. maí 2012 úr kr.350.000.- í kr. 402.000.-. Hámarkstekjuviðmið þeirra sem hafa skemmri aðild en 5 ár hækkaði úr kr. 280.000.- í kr. 322.000.-.

Skerpt var á geymdum réttindum atvinnuleitenda og félagsmanna í fæðingarorlofi samkvæmt 10. gr. reglugerðarinnar.  Heiti 12. gr. reglugerðarinnar sem hét „Jóhönnu- og Vilborgarsjóður“ var breytt í „Styrktarsjóður Eflingar-stéttarfélags“, auk þess sem orðalag var lagað hér og þar og 11. gr. B. um tímabil dagpeningagreiðslna var skipt upp í 8. töluliði og er því skýrari en áður var.



islenska_kronan                                                Styrkir hækka í sjúkrasjóði

Frá og með 1. janúar 2012 hækka eftirfarandi styrkir hjá Sjúkrasjóði Eflingar til að koma til móts við sjóðfélaga vegna  hækkana hjá meðferðaraðilum:  Hækkanirnar nú nema allt að 100%.



 utborgun0101                                                                                        Frá sjúkrasjóði og fræðslusjóðum Eflingar

Útborgun fyrir jólin.

15. desember er síðasti skiladagur umsókna vegna desembermánaðar 2011.

Stefnt er að því að greiða út fyrir jólin eða þann 22. desember n.k.



gudrun_01                                        Mjög gefandi starf í sjúkrasjóðum

- segir Guðrún Óladóttir, sjóðsstjóri


Eftir hrunið haustið 2008 fjölgaði umsóknum í sjóðina gríðarlega og sú þróun heldur áfram. Fyrir hrunið voru umsóknir í kringum 400 á mánuði en eru nú um eða yfir 600 sem er þriðjungs aukning. Hækkun útgjalda og fjölgun umsókna milli ársins 2009 og 2010 er til að mynda yfir 10%, á sama tíma og tekjur sjóðanna hafa verið að dragast mikið saman. Þrátt fyrir það er fjárhagsstaða sjóðanna ágæt eftir hrunið og búa þeir að góðri fjármálastjórnun og varfærni í útgjöldum undanfarin ár, en þó mun ganga verulega á höfuðstól Jóhönnu- og Vilborgarsjóðs, segir Guðrún Óladóttir, sviðsstjóri sjúkrasjóða Eflingar þegar við spurðum hana um helstu verkefni og tíðindi af sjúkrasjóðunum.



sjukrasjod_02      Sjúkrasjóður hækkar styrki

Sjúkrasjóður hækkar nokkrar styrkjategundir frá og með 1. janúar 2011 og bætir einni nýrri við: Styrkur vegna svefngríma CPAP gegn kæfisvefni.

Starfsmenn Sjúkrasjóðs hafa haldið skrá um kvartanir til sjúkrasjóðs um nokkurt skeið og hefur komið í ljós að kvartanir vegna upphæðar gleraugnastyrks og heyrnartækja skera sig úr, þar sem  um 90%  kvartanna voru vegna þeirra, enda  hefur kostnaður sjóðfélaga  vegna kaupa á þessum tækjum  hækkað hvað mest eftir að kreppan skall á.  Þess vegna  ákvað stjórn sjóðsins á dögunum að hækka endurgreiðslur vegna gleraugna og heyrnarstyrks auk nokkurra annarra styrktegunda þar sem kostnaður sjóðfélaga hefur einnig hækkað umtalsvert undanfarið.



Tilkynning til greiðsluþega Sjúkrasjóðs og Fræðslusjóða Eflingar-stéttarfélags

Frá og með 01.01.2010 mun greiðslutilkynning eingöngu koma til þín í heimabanka. Viljir þú frekar fá tilkynningu senda til þín í pósti en í heimabankann, þá vinsamlegast merktu í sérstakan reit á umsóknareyðublaði. Slóðin í heimabankanum þínum er þessi - Yfirlit - netyfirlit/rafræn skjöl - Efling, stéttarfélag. Þar undir getur þú skoðað greiðsluseðil þinn.

Athugið! Skila þarf gögnum fyrr í desember 2009 . Greitt verður út fyrir jólin.
Til að ná þeirri útborgun þarf að skila umsóknum og öðrum gögnum í síðasta lagi 15.12.09. Fyrsta útborgun 2010 verður um mánaðamótin janúar/febrúar 2010.



Stuðningur við atvinnulausa til heilsuræktar

Alþýðusamband Íslands, ASÍ, og Samtök heilsuræktarstöðva, SHS, gerðu 6. febrúar 2009 rammasamning um að styrkja einstaklinga í atvinnuleit til að stunda heilsurækt. Atvinnuleysi hér á landi hefur stóraukist undanfarið vegna erfiðs efnahagsástands. Að mati Alþýðusambands Íslands og Samtaka heilsuræktarstöðva eru það ótvíræðir hagsmunir einstaklinganna og þjóðfélagsins alls að atvinnuleitendum sé gefinn kostur á að rækta líkamlegt og andlegt atgervi. Færðar hafa verið sönnur á að regluleg hreyfing sé mikilvæg undirstaða heilbrigðis.

Vegna þessara aðstæðna hafa ASÍ fyrir hönd aðildarfélaga sinna og neðangreindar heilsuræktarstöðvar ákveðið að framlengja gildistíma samningsins til og með 31. desember 2010.

Þau stéttarfélög innan ASÍ sem gerast aðila að samningnum styrkja félagsmenn sína sem hafa misst vinnuna og eru atvinnulausir um kr. 2.000 að lágmarki á mánuði til að stunda heilsurækt. Heilsuræktarstöðvar innan SHS veita þessum viðskiptavinum að lágmarki 50% afslátt á greiðslu af mánaðarkortum stöðvanna.

Atvinnulausum félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ sem gerst hafa aðilar að samningnum stendur nú til boða mánaðarkort á sérkjörum með stuðningi félagsins. Algengasta verð er frá 1.500 til 2.000 kr. á mánuði.

Eftirtaldar heilsuræktarstöðvar eru þátttakendur í verkefninu: Árbæjarþrek, Baðhúsið, Bjarg, Dansrækt J.S.B., Hress, Hreyfing, Sporthúsið, Toppsport, og World Class.








 

Vissir þú?
 virk2




Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is