Við erum öll mikilvæg

stöndum saman

Finna

Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2013

Aðalfundur  Eflingar - stéttarfélags 2013 verður haldinn á Grand Hótel þriðjudaginn 30. apríl  2013.  Fundurinn hefst kl. 20.00

Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breyting á reglugerð Sjúkrasjóðs
3. Viðbygging við Sætún 1
4. Önnur mál


Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni að Sætúni 1 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 23.apríl nk.

Félagar mætið vel og stundvíslega.


      Stjórn Eflingar-stéttarfélags




Í boði hjá Eflingu

Námskeið fyrir atvinnuleitendur

Efling býður upp á tvö ný námskeið fyrir atvinnuleitendur í febrúar. Námskeiðin eru félagsmönnum að kostnaðarlausu og eru haldin hjá Eflingu stéttarfélagi, Sætún 1 – 4 hæð, 105 Rvík.

Dagskrá apríl 2013

10. apríl kynningarfundur nýir atvinnuleitendur kl. 13-14

17. apríl Atvinnuleysi og fjölskyldan kl. 13-15

Sætúni 1 – 4 hæð, 105 Reykjavík. Námskeiðið er félagsmönnum að kostnaðarlausu.

Námskeiðið fjallar sérstaklega um áhrif atvinnuleysis fjölskyldumeðlima á fjölskyldulífið og parasambönd og er í samvinnu við Lifandi ráðgjöf.

Fjallað verður meðal annars um:
? Áhrif atvinnuleysis á sjálfsmynd og sjálfstraust
? Ríkjandi tilfinningar í kjölfar atvinnuleysis svo sem óöryggi, kvíði, sorg, reiði og félagsleg einangrun
? Áhrif atvinnuleysis á parasamband og foreldrahlutverkið
? Fjallað verður um hvernig samskipti og hlutverkaskipti  innan  fjölskyldunnar getur breyst í kjölfar atvinnuleysis Hvað er til ráða? Hverjar eru lausnirnar? Hvernig er hægt að breyta umtalaðri reynslu í ávinning og bættra lífsgæða fyrir alla aðila?

Skráningarfrestur er til og með 14. apríl nk.

ATHUGIÐ AÐ ÞAÐ ÞARF AÐ SKRÁ SIG Á NÁMSKEIÐIN Í SÍMA 510 7500 EÐA SENDA PÓST Á fjola@efling.is



Kynntu þér starfsemi VIRK með því að smella á auglýsinguna hér að neðan.

 virk2



Í boði hjá Eflingu

Náms- og starfsráðgjöf

Bókið viðtal í síma 510-7500

Margir þurfa á ýmiss konar ráðgjöf að halda í núverandi atvinnuástandi og nú er lag að nýta tímann til að efla sig í ýmiss konar starfs- og námsráðgjöf.  Efling-stéttarfélag býður í samvinnu við náms- og starfsráðgjafa frá Mími–símenntun upp á náms- og starfsráðgjöf á skrifstofu Eflingar. Ráðgjöfin fer fram á fimmtudögum milli kl. 14-16.

Náms- og starfsráðgjafi getur t.d. veitt:
• Upplýsingar um fjölbreytt nám og námsleiðir sem eru í boði fyrir fólk á vinnumarkaði og í atvinnuleit
• Aðstoð við að kanna áhugasvið og meta hvar styrkleikar liggja í námi eða starfi
• Aðstoð við að útbúa ferilskrá sem er mikilvægt tæki í atvinnuleit
• Aðstoð við að útvíkka hugmyndir í starfsleit
• Upplýsingar um möguleika á styrkjum úr fræðslusjóðum
• Leiðbeiningar um hvernig hægt er að fá annað nám metið

Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að fá upplýsingar og aðstoð í náms- eða starfsleit.
Ekki hika við að bóka tíma, það verður tekið vel á móti þér!



Efling – stéttarfélag
Auglýsir framboðsfrest

Kjörstjórn Eflingar – stéttarfélags auglýsir framboðsfrest vegna kosningar á einum fulltrúa á þing ASÍ -UNG sem haldið verður 14. september n.k.

Tillaga skal vera um 1 þingfulltrúa samkvæmt 10. grein samþykkta fyrir ASÍ – UNG.

Tillaga uppstillinganefndar liggur frammi á skrifstofu félagsins frá og með föstudeginum 20. júlí 2012.

Öðrum  tillögum ber að skila á skrifstofu félagsins fyrir kl. 12:00 föstudaginn 27. júlí.

Kjörstjórn Eflingar - stéttarfélags



Vissir þú?


Efling - stéttarfélag   |   Sætún 1   |   sími: 510 7500   |   fax: 510 7501  |   efling@efling.is