Efling styður Kvennafrí 2018 – Kvennaverkfall

16. 10, 2018

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru meðalatvinnutekjur kvenna 74% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 26% lægri atvinnutekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 5 klukkustundir og 55 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:55.Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:55 miðvikudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufund á Arnarhóli, kl. 15:30 undir kjörorðinu: Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!Hægt er að fá frekar upplýsingar um Kvennafrí á heimasíðunni: www.kvennafri.isKomdu og gerðu þitt eigið spjald fyrir kröfugönguna, 21. október kl 14:00 í Eflingar húsinu að Guðrúnartúni 1, á 4. Hæð.  Skráðu þig á viðburðinn á Facebook hér: https://www.facebook.com/events/2129069870456903/