Launahækkanir samkvæmt kröfugerð Starfsgreinasambandsins

Frá Eflingu – stéttarfélagiForsenda kröfugerðar Starfsgreinasambandsins (SGS) er sú, að launafólk geti framfleytt sér á dagvinnulaunum. Markmiðið er að lágmarkslaun dugi fyrir framfærslukostnaði einstaklings samkvæmt framfærsluviðmiðum stjórnvalda (að viðbættum lágmarks húsnæðiskostnaði).Þessu markmiði má ná með skattalækkun, hækkun bóta og hækkun launa, í mismunandi samsetningum.Starfsgreinasambandið setur fram kröfu um að lágmarkslaun verði 425.000 krónur í lok samningstímans (3 ár). Hið sama gerir VR. Ef hækkunin dreifist jafnt á þrjú ár þá er þetta hækkun um 42.000 krónur á ári. Ef hækkunin verður flöt upp launastigann, sú sama í krónutölu fyrir alla, þá yrði prósentuhækkun launa fallandi.Á myndinni hér að neðan er sýnd prósentuhækkun á ári eftir stighækkandi grunnlaunum, sem flöt hækkun um 42.000 kr. skilar, á verðlagi ársins 2018.Lágmarkslaun myndu hækka um 14% á ári en allra hæstu laun myndu hækka um 1%. Meðallaunahækkun reglulegra launa (skv. skilgreiningu Hagstofu Íslands) yrði 6,5% á ári og miðlaun myndu hækka um 7,7%. Helmingur launafólks er með lægri laun en miðlaun og helmingur hærri.Ekki er tekið tillit til hugsanlegra breytinga á vinnutíma, skatta- og bótakerfum, eða öðrum starfstengdum skilyrðum.