Leiðrétting: Mundu eftir desemberuppbótinni

26. 11, 2019

Desemberuppbót er föst fjárhæð og orlof reiknast ekki ofan á desemberuppbótina.Þau leiðu mistök urðu við prentun síðasta tölublaðs Eflingar að desemberuppbót fyrir almenna markaðinn var sögð 89.000 kr. Hið rétta er 92.000 kr. eins og fram kemur hér að neðan.SA – Samtök atvinnulífsins – Almenni markaðurinn (einkafyrirtæki) 92.000 kr.Þeir sem eru í starfi fyrstu viku í desember eða hafa verið samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eiga rétt á uppbót eigi síðar en 15. desember. Fullt ársstarf m.v. 45 vikur eða 1800 klst. á tímabilinu 1. janúar – 31. desember.Reykjavíkurborg og ríkið/hjúkrunarheimili – Miða skal við upphæð síðasta árs 97.100 kr. hjá Reykjavíkurborg og 89.000 kr. hjá ríki/hjúkrunarheimilum þar sem upphæð þessa árs hefur ekki verið ákveðin vegna þess að samningaviðræður standa enn yfir. Þeir sem eru við störf fyrstu viku nóvember eða hafa starfað í 13 vikur samfellt á árinu skulu fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert. Full uppbót miðast við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október.Sveitarfélög – Miða skal við upphæð síðasta árs 113.000 kr. þar sem upphæð þessa árs hefur ekki verið ákveðin vegna þess að samningaviðræður standa enn yfir. Þeir sem starfað hafa frá 1. september skulu fá greidda desemberuppbót 1. desember ár hvert. Full uppbót miðast við fullt starf tímabilið 1. janúar til 30. nóvember.Þeir sem láta af störfum á árinu eiga rétt á desemberuppbót hafi þeir starfað samfellt í 6 mánuði. Greitt er miðað við starfstíma og starfshlutfall og miðast þá tímabilið við 1. janúar – 31. desember___________________________________Desemberuppbót er greidd m.v. starfshlutfall og starfstíma.Desemberuppbót á að gera upp við starfslok.