Um Eflingarþing
Eflingarþing verður haldið 26.-27. febrúar 2026 í Austurbæjarbíó, Snorrabraut.
Eflingarþing er stórviðburður og nýjung í starfi félagsins, hugsað til skerpa rödd félagsfólks og leggja línur fyrir stefnu félagsins í hagsmunamálum verkafólks.
Á þinginu munu virkir félagsmenn vinna sameiginlega að stefnumótun með skipulagðri dagskrá, hópavinnu og samþykkt ályktana. Gestafyrirlesarar, sóttir innan og utan landsteinanna, munu halda erindi á þinginu.
Trúnaðarráð Eflingar vinnur undirbúningsvinnu fyrir stefnumótun Eflingarþings, en þingið mun eiga síðasta orðið um samþykkt ályktana.
Dagskráin nær yfir fimmtudag og föstudag frá morgni til síðdegis, og lýkur með hátíðarkvöldverði á föstudeginum 27. febrúar.
Dagskrá
Ítarleg dagskrá þingsins er í smíðum og verður auglýst þegar nær dregur.
Þingfulltrúar
Allir virkir félagsmenn (stjórnarmenn, trúnaðarráðsfélagar og trúnaðarmenn) fá sjálfkrafa sæti á þinginu gegn staðfestingu. Þegar virkir félagsmenn hafa staðfest komu verður þeim þingsætum sem eftir standa úthlutað eftir geirum, og fá áhugasamir félagsmenn þá tækifæri til þess að tilnefna sig eða annan félagsmann til þingsetu.
Eflingarfélagar sem hafa fengið boð um sæti á Eflingarþinginu eru beðnir um að staðfesta þátttöku sína hér.
Launatap þingfulltrúa
Allir atvinnurekendur staðfestra þingfulltrúa munu fá erindi frá félaginu þar sem þess verður óskað að þeir fái heimild til launaðs leyfis úr vinnu til að sækja þingið báða dagana, með vísun í ákvæði kjarasamninga þar sem við á.
Trúnaðarmannanámskeið Eflingar verður fellt niður í febrúarmánuði, og er hugsunin með því sú að hvetja atvinnurekendur til að samþykkja að veita trúnaðarmanni launað leyfi sem nýtt verði til þingsetu í stað námskeiðssetu. Þannig yrði öllum trúnaðarmönnum tryggður a.m.k. einn launaður þátttökudagur á þinginu.
Trúnaðarmenn á opinbera vinnumarkaðinum eiga skv. kjarasamningum rétt á því að sækja viðburði á vegum Eflingar án launataps og myndu þeir geta nýtt þann rétt til að tryggja sér frí án launtaps báða dagana.
Þeir þingfulltrúar sem ekki fá launað leyfi geta til vara óskað eftir launalausu leyfi frá atvinnurekanda og fengið launatap endurgreitt frá Eflingu. Nánari leiðbeiningar um ferlið við að sækja um endurgreiðslu á launtapi verða kynntar þegar nær dregur.