Kjarasamningar Eflingar, Flóafélaganna VR og LÍV – Árangurslausar viðræður

19. 05, 2015

Flóafélögin Efling, Hlíf og VSFK sátu ásamt VR og LÍV á fundi með sáttasemjara í dag þar sem rætt var m.a. um vinnutímamál og forsendur kjarasamninga.Félögin hafa á síðustu dögum skoðað nálgun sem SA hefur lagt fram um breytingar á vinnutímamálum en bakland félaganna hefur sagt þvert nei við nálgun SA. Félögin lögðu í dag fram nýja tillögu í málinu sem felst í bókun milli aðila  sem unnið yrði með á samningstímanum. SA lýsti því strax yfir að þessi bókun gengi ekki.Í framhaldinu lýstu félögin því yfir að fyrri kröfur stæðu eftir á borðinu og sáttasemjari hefur ekki boðið til nýs fundar.Myndin við fréttina er frá því þegar Flóafélögin afhentu SA kröfur sínar þann 11. febrúar sl.