Þegar smellt er á tengil fyrir atkvæðagreiðslu opnast þessi gluggi, sem eftir innskráningu opnar leið að atkvæðaseðli.
- Hægt er að auðkenna sig/skrá sig inn til að greiða atkvæði með Íslykli eða rafrænum skilríkjum á farsíma eða snjallkorti.
- Ef þú vilt auðkenna þig með rafrænum skilríkjum þá slærð þú inn GSM símanúmer þitt inn í svæðið „Símanúmer“. Að því loknu smellir þú á hnappinn „Innskrá“, þá koma boð í síma þinn þar sem þú ert beðin um að slá inn “pin” númer þitt. Ef þú ert á kjörskrá þá birtist kjörseðilinn.
- Ef rafrænu skilríkin í símanum þínum eru óvirk má snúa sér til næsta bankaútibús til að fá skilríkin virkjuð.
- Ef þú vilt auðkenna þig með rafrænum skilríkjum þá slærð þú inn GSM símanúmer þitt inn í svæðið „Símanúmer“. Að því loknu smellir þú á hnappinn „Innskrá“, þá koma boð í síma þinn þar sem þú ert beðin um að slá inn “pin” númer þitt. Ef þú ert á kjörskrá þá birtist kjörseðilinn.
- Ef þú vilt auðkenna þig með Íslykli þá slærð þú inn kennitölu þína inn í svæðið „Kennitala“ og Íslykilinn þinn inn í svæðið „Íslykill“. Að því loknu smellir þú á „Staðfesta“. Ef þú ert á kjörskrá þá birtist kjörseðilinn.
- Ef þú ert ekki með virkan Íslykil má sækja nýjan Íslykil með því að smella á „Mig vantar Íslykil“.
- Þá þarft að slá inn kennitölu og velja að senda lykil í heimabanka.
- Farðu inn á heimabankann þinn undir rafræn skjöl, þar er nýr Íslykill sennilega þrjú orð með punkti á milli.
- Skrifaðu þennan Íslykil inn í Word skjal því algengustu vandræðin eru innsláttarvilla þegar viðkomandi ætlar að skrá sig inn.
- Farðu aftur inn á heimasíðu Eflingar (http://www.efling.is)
- Veldu tengilinn fyrir kosninguna (sjá ofar), þegar innskráningarsíðan birtist sláðu inn kennitölu og afritaðu Íslykilinn þinn úr Word skjalinu og ýttu á „Staðfesta“.
- Nú þarft þú að búa til nýjan Íslykil, hann þarf að vera 10 stafir gott að nota orð eða nafn með punkt á milli og tölustafi í restina (bara uppástunga), settu síðan inn GSM númer og netfang og ýttu svo á „Staðfesta“.
- Eftir að þú ýttir á „Staðfesta“ ættir þú að sjá atkvæðaseðil.
- Opnast nú „Atkvæðaseðill“. Á atkvæðaseðlinum er spurt um afstöðu til tímabundinnar og ótímabundinnar vinnustöðvunar félagsmanna Eflingar hjá Reykjavíkurborg skv. tillögu samninganefndar Eflingar (dags. 14/1 2020) gagnvart Reykjavíkurborg.
- Hægt er að velja á milli þess að lesa kjörseðilinn á íslensku, ensku og pólsku. Skipt er milli tungumála með því að smella á fánana efst til hægri.
- Kjósendur sem samþykkja vinnustöðvunina merkja við á „já“
- Kjósendur sem hafna vinnustöðvun smella á „nei“
- Kjósendur sem ekki taka afstöðu smella á „tek ekki afstöðu“.
- Þegar afstaða hefur verið tekin til vinnustöðvunar er atkvæðaseðli skilað í kjörkassann með því að smella á hnappinn „Kjósa“.
- Þegar atkvæðið hefur komist til skila birtist skjár sem segir „Takk fyrir Þátttökuna“.
- Félagsmaður sem telur sig eiga atkvæðisrétt en er ekki inni á kjörskrá getur haft samband við skrifstofu Eflingar, netfang: thorir@efling.is
- Kjörskrá verður eytt að loknum kosningum.