Hvenær má ég óska eftir því að upplýsingar um mig séu leiðréttar, þeim eytt eða vinnsla þeirra takmörkuð?
Undir vissum kringumstæðum átt þú, sem félagsmaður hjá stéttarfélagi, rétt á að fá tilteknum upplýsingum um þig leiðréttar, fá þeim eytt eða takmarka vinnslu þeirra. Byggjast þessi réttingi á 1. mgr. 20. gr.persónuverndarlaga og 16. til 18. gr. reglugerð 2016/679 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga.
- Leiðrétting
Hinn skráði á rétt á að fá óáreiðanlegar persónuupplýsingar er varða hann sjálfan leiðréttar af stéttarfélagi án ótilhlýðilegrar tafar. Að teknu tilliti til tilgangsins með vinnslunni skal hinn skráði eiga rétt á að láta fullgera ófullkomnar persónuupplýsingar.
- Eyðing – Rétturinn til að gleymast
Hinn skráði á rétt á að stéttarfélagið eyði persónuupplýsingum um sig án ótilhlýðilegrar tafar ef ein eftirtalinna ástæðna á við:
- Persónuupplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar í þeim tilgangi sem lá að baki söfnun þeirra eða annarri vinnslu þeirra.
- Hinn skráði dregur til baka samþykkið sem vinnslan byggist á engin annar lagagrundvöllur er til staðar fyrir vinnslunni.
- Hinn skráði andmælir vinnslunni í samræmi við persónuverndarlög og ekki eru fyrir hendi lögmætar ástæður fyrir vinnslunni sem ganga framar.
- Eyða þarf persónuupplýsingunum til að uppfylla lagaskyldu sem hvílir á stéttarfélaginu skv. lögum.
- Takmörkun á vinnslu
Við eftirfarandi kringumstæður getur hinn skráði krafist þess að vinnsla persónuupplýsinga sé takmörkuð:
- Þegar hinn skráði vefengir að persónuupplýsingar séu réttar, skal takmarka vinnslu þeirra þangað til ábyrgðaraðilinn hefur fengið tækifæri til að staðfesta að þær séu réttar.
- Þegar vinnsla er ólögmæt og hinn skráði andmælir því að persónuupplýsingunum sé eytt og fer fram á takmarkaða notkun þeirra í staðinn.
- Þegar stéttarfélagið þarf ekki lengur á persónuupplýsingunum að halda fyrir vinnsluna en hinn skráði þarfnast þeirra til þess að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur,
- Þegar hinn skráði andmælir vinnslu skal takmarka hana á meðan beðið er sannprófunar á því hvort hagsmunir stéttarfélagsins gangi framar lögmætum hagsmunum hins skráða.