Lýsing
- Húsið er á einni hæð og eru 2 herbergi með tvíbreiðum rúmum, 3 herbergi með 1 og ½ breidd af rúmum. Auk þess eru 2 dýnur í bílskúrnum. Stórt eldhús og stofa og sjónvarpsstofa ásamt snyrtingu og stóru baðherbergi með sturtu. Góður bakgarður, pallur, grill og garðhúsgögn. Svefnpláss er fyrir tólf. Sængur og koddar eru fyrir tólf manns. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, útvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld.
Upplýsingar
- Lyklabox.
- Til að sjá staðsetningu á korti smellið hér.
- ATH. GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ.
Tenglar
- heimasíða http://www.borgarbyggd.is/
Leiga
- Vikuverð 32.000 kr. – Helgarleiga, 3 nætur 23.500 kr.
Annað
- Húsið tilheyrir orlofsbyggð Svignaskarðs en stendur eitt og sér við þjóðveg 1 á hægri hönd á móti orlofsbyggðinni. Húsið er hið glæsilegasta einbýlishús með heitum rafmagnspotti. Fallegt og víðsýnt er frá bæjarstæðinu. Margt fallegt er hægt að skoða allt um kring og má þá nefna Langavatn, Baula við Bifröst og Hreðavatn en þar eru einstaklega fallegar gönguleiðir.
Um 1 klst. Og 15 mín. Tekur að keyra þangað frá Reykjavík eða um 107 km.