Umsóknir og úthlutun orlofshúsa 2022-2023

Páskar

Útleigutímabilið yfir páskana 2023 er frá 5. – 13. apríl, frá miðvikudegi til miðvikudags og aðeins hægt að sækja um vikuleigu.

Umsóknartímabil er 1. – 18. febrúar og verður opið fyrir umsóknir á bókunarvefnum á þessu tímabili. Úthlutað verður 22. febrúar samkvæmt punktakerfi. Athugið að ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabilinu sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsmanna. Niðurstöður úthlutunar verða senda sendar í tölvupósti og greiðslufrestur er til og með 2. mars. Eftir það opnast bókunarvefurinn þann 6. mars kl. 9:00 fyrir alla félagsmenn með réttindi til að bóka laus sem eftir eru um páskana.

Páskaúthlutun2023
Umsóknartímabil hefst1. febrúar
Umsóknartímabil lýkur15. febrúar
Úthlutun22. febrúar
Greiðslufrestur2. mars
Opið fyrir bókanir 6. mars

Sumar

Útleigutímabilið sumarið 2023 er frá 2. júní til 1. september og aðeins vikuleiga í boði frá föstudegi til föstudags.

Umsóknartímabil fyrir sumarleigu er 1. –  20. mars og hægt er að fylla út umsóknir á bókunarvefnum á þessu tímabili. Úthlutað verður 22. mars samkvæmt punktakerfi. Allir félagsmenn geta sótt um, það er eingöngu punktastaða umsækjenda sem ræður niðurstöðu úthlutunar. Svör verða senda í tölvupósti og greiðslufrestur er til 5. apríl (23:59 4.apríl). Eftir það opnast bókunarvefurinn í tveimur skrefum til að bóka laus hús yfir sumarið.

Opnunardagar í „fyrstur nær fyrstur fær“:

  • Þann 5. apríl kl 12:00 fyrir félagsmenn sem eiga 100 punkta og yfir.
  • Þann 13. apríl kl. 9:00 alla félagsmenn óháð punktastöðu til að bóka það sem enn er laust yfir sumarið.

Athugið að þegar sótt er um í úthlutun á bókunarvef Eflingar inni á Mínum síðum, skal velja „orlofshús“ og svo „umsókn“.

Þegar orlofshús er bókað beint eftir að úthlutun er lokið, „í fyrstur nær fyrstur fær“, þá skal velja „laus orlofhús“, bóka og ganga strax frá greiðslu.

Fyrir nánari upplýsingar og aðstoð skal hafa samband við skrifstofu eða senda tölvupóst á orlof@efling.is

Sumarúthlutun2023
Umsóknartímabil hefst1. mars
Umsóknartímabil lýkur20. mars
Úthlutun22. mars
Greiðslufrestur5. apríl (23:59 4.apríl)
Opið fyrir bókanir 100p. og meira 5.-11. apríl
Opið fyrir alla13. apríl

Upplýsingar fyrir leigutaka orlofshúsa má sjá hér.

Upplýsingar um greiðslu fyrir leigu á orlofshúsi má sjá hér.

Upplýsingar um afpantanir og breytingar á leigusamningi má sjá hér.

Leiðbeiningar um bókanir á orlofshúsum á vefnum, sjá hér.