26. ágú Kl — 00:00

Leikskólaliðabrú

— Mímir, Höfðabakka 9 — 26. ágú 2023

Kennslutímabil: 26. ágúst – 16. desember 2023
Kennsludagar: Kennt í fjarnámi að mestu.

Leikskólaliðabrú er ætluð þeim sem vinna á leikskólum við uppeldi og umönnun barna. Námið er einingabært og kennt er samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Að námi loknu útskrifast nemendur sem leikskólaliðar.

Námið veitir þekkingu og færni til að starfa með börnum í námi og leik. Áhersla er lögð á uppeldisfræði, sálfræði, listsköpun og notkun leikja. Leikskólaliðar starfa við hlið annars fagfólks á leikskólum.

Brúarnám miðast við 3ja ára starfsreynslu og ca. 140-170 stunda starfstengd námskeið. Eins eru framhaldskólaeiningar metnar ef áfangar eru þeir sömu eða sambærilegir við þá sem kenndir eru á brautinni. Námið er 61 framhaldsskólaeining og er kennt á fjórum önnum.

Námið er ætlað félagsmönnum Eflingar sem starfa í leikskóla og er þeim að kostnaðarlausu.

Námskeiðið eru kennt á íslensku.

Skráning er á vefnum, sjá eyðublað hér að neðan. Ef þið þurfið aðstoð við skráninguna getið þið haft samband við Eflingu-stéttarfélag í síma 510 7500 eða sent tölvupóst á netfangið felagsmal@efling.is.

Fyrir aðra en félagsmenn Eflingar: Sendið póst á mimir@mimir.is.

Skráningareyðublað

Skráning Leikskólaliðabrú (ágúst)
Staðfesta netfang / Confirm Email / Powtórz email