Eftir Freyr Efling
•
12. mars 2026
Rekstur Eflingar stéttarfélags var afar öflugur á rekstrarárinu 2025. Tekjur hækkuðu um 16% milli ára, afkoma batnaði um 301 milljón króna og fjárhagsstaða félagsins styrktist talsvert. Ársreikningur Eflingar stéttarfélags fyrir árið 2025 var samþykktur af stjórn félagsins í dag, 12. mars 2026. Niðurstöður rekstrarársins 2025 eru afar jákvæðar. Félagið stendur betur að vígi en nokkru sinni fyrr, með sterkum tekjugrunni, hóflegum vexti rekstrarkostnaðar og enn bættri afkomu, á sama tíma og markviss uppbygging í þágu félagsmanna átti sér stað. Heildarafkoma ársins nam tæpum 1,3 milljörðum króna, sem er sambærileg afkoma og árið 2024. Verulegur tekjuvöxtur Heildartekjur Eflingar námu rúmum 4,2 milljörðum króna árið 2025, sem er 579 milljónum krónum hærra en árið 2024, eða aukning um 15,9%. Félagsgjöld hækkuðu um 452 milljónir og tekjur af orlofshúsum og annarri þjónustu jukust einnig, sem endurspeglar bæði fjölgun félaga og meiri virkni í starfsemi félagsins. Þrátt fyrir áskoranir á innlendum og erlendum mörkuðum, meðal annars vegna hás vaxtastigs og slakrar ávöxtunar sem hafði áhrif á fjármunatekjur, hefur Efling haldið rekstri sínum á öruggum og jákvæðum grunni. Þetta undirstrikar ráðdeild, ábyrgð og aga í rekstri félagsins. Kostnaður hækkaði minna en áætlað var Kostnaður félagsins, þar með talið útgreiddar bætur og styrkir, hækkaði í 3,5 milljarða króna, sem er hækkun um 8,6%. Hins vegar lækkaði rekstrarkostnaður skrifstofu félagsins um ríflega 6 milljónir króna milli ára. Þetta sýnir skýrt aðhaldssemi og góða stjórn á rekstrarþáttum félagsins. Launa- og starfsmannakostnaður hækkaði í takt við aukin verkefni og fjölgun stöðugilda, auk kjarasamningsbundinna launahækkunna. Á árinu var jafnframt ráðist í fjölmargar fjárfestingar og endurbætur sem styrkja langtímaafkomu félagsins og bæta þjónustu við félagsmenn. Þar má nefna endurnýjun húsnæðis og framþróun í upplýsingatækni, auk umtalsverðra endurbóta á orlofshúsum, sem stuðla að betri nýtingu og auknum gæðum í þjónustu sem mun nýtast félagsfólki til framtíðar. Afkoman styrkist Rekstrarniðurstaða ársins nam 722 milljónum króna, sem er mikil bæting frá 421 milljón árið 2024. Fjármagnsafkoma Eflingar nam 563 milljónum króna. Þrátt fyrir sveiflur á mörkuðum var fjármagnsafkoman áfram sterk. Árangurinn sýnir að Efling bregst vel við breytilegu efnahagsumhverfi með markvissum og ábyrgum aðgerðum. Eignir og eigið fé halda áfram að vaxa Heildareignir jukust um tæplega 1,5 milljarða króna, eða 8,9%, og námu ríflega 18,2 milljörðum króna í lok árs. Miklar framkvæmdir og fjárfestingar í innviðum og þjónustu eru lykilþættir í þessari aukningu. Eigið fé jókst um 1.345 milljónir króna, eða 8,3%, og stóð við árslok í um 17,6 milljörðum króna. Þetta endurspeglar sterka fjárhagsstöðu og sjálfbæra rekstrarstefnu Eflingar stéttarfélags. Framsýni og ábyrgð skila árangri „Niðurstöður ársins endurspegla hvernig við höfum lagt ríka áherslu á ábyrg fjármál, gagnsæi og framsýna ákvarðanatöku. Við höfum unnið skipulega að því að bæta innri ferla, styrkja rekstrargrundvöll félagsins og tryggja félagsmönnum betri þjónustu. Reksturinn er að skila sér vel en vegna erfiðra aðstæðna á fjármagnsmörkuðum var ávöxtun fjármuna félagsins undir væntingum,“ segir Perla Ösp Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar. Á sama tíma og reksturinn hefur verið traustur hefur Efling líka farið í markvissar aðgerðir til að byggja upp innviði til framtíðar, efla þjónustu og tryggja að félagið standi sterkt gegn þeim áskorunum sem fylgja sveiflukenndu efnahagsumhverfi. Efling betur í stakk búin en nokkru sinni fyrr Fjárhagslegur stöðugleiki, ráðdeild og framsækni eru nú ráðandi þættir í starfsemi félagsins. Efling stendur því betur að vígi en nokkru sinni áður, fjárhagslega, skipulagslega og þjónustulega, og mun halda áfram á sömu braut með ábyrgð, ráðdeild og metnað að leiðarljósi. Ársreikningur Eflingar er birtur hér á vefsíðu félagsins en jafnframt liggur eintak hans frammi í afgreiðslu Eflingar stéttarfélags, Guðrúnartúni 1, til sýnis fyrir félagsfólk. Hér má finna undirritaðan ársreikning Eflingar stéttarfélags fyrir árið 2025.