Eflingarþing 2026

26.-27. febrúar 2026 í Austurbæjarbíó, Snorrabraut

Um Eflingarþing

Eflingarþingið var haldið 26.-27. febrúar 2026 í Austurbæjarbíó, Snorrabraut.


Eflingarþing er stórviðburður og nýjung í starfi félagsins, hugsað til skerpa rödd félagsfólks og leggja línur fyrir stefnu félagsins í hagsmunamálum verkafólks.


Á þinginu unnu virkir félagsmenn sameiginlega að stefnumótun með skipulagðri dagskrá, hópavinnu og samþykkt ályktana. Gestafyrirlesarar, sóttir innan og utan landsteinanna, héldu erindi á þinginu.


Trúnaðarráð Eflingar vann undirbúningsvinnu fyrir stefnumótun Eflingarþings, en þingið átti síðasta orðið um samþykkt ályktana. Á þessu þingi var áhersla lögð á húsnæðismálin, launaþjófnað og virðingu á vinnustað.


Dagskráin náði yfir fimmtudag og föstudag frá morgni til síðdegis, og lauk með hátíðarkvöldverði á föstudeginum 27. febrúar.


Dagskrá

Hópa og borðaskiptingar

Endanlegar ályktanir

Ávörp gestafyrirlesara

Fréttir af þinginu

Myndir

Fundargerð Eflingarþings

Fylgstu vel með auglýsingum félagsins um tilnefningar og kosningar á heimasíðu Eflingar og í tölvupósti. Til að tryggja að þú missir ekki af neinu er mikilvægt að fylla út persónuspjaldið á Mínum síðum með netfangi og símanúmeri. 


Hafðu samband ef frekari spurningar vakna á
felagsmal@efling.is