Leiðbeiningar fyrir Mínar síður

Á Mínum síðum á vefsvæði Eflingar er að finna persónublað sem inniheldur margvíslegar upplýsingar um réttindi félagsfólks. Hægt er að sækja um orlofshús, sjúkrastyrki og sjúkradagpeninga. Jafnframt er hægt að fylgjast með réttindaávinnslu og skilum atvinnurekenda á iðgjöldum. Félagsfólk sem vinnur eftir sveitarfélagasamningi getur fylgst með inneign í Félagsmannasjóði, sem er til útgreiðslu 1. febrúar.

Innskráning – félagsmaður skráir sig inn á Mínar síður af heimasíðu félagsins, www.efling.is. Hægt er að nota rafræn skilríki, Íslykil eða lykilorð sem félagið gefur út. Fyrirhugað er að hætta notkun eigin lykilorða á næstu mánuðum og eftir það verður aðeins hægt að nota rafræn skilríki eða Íslykil.

Þegar smellt er á Rafræn innskráning, flyst félagsmaður yfir á innskráningarsíðu Ísland.is og getur þar valið á milli þess að skrá sig inn með Íslykli eða farsímanúmeri. Enn er hægt að skrá sig inn með lykilorði, en það er samt háð því að félagið eigi netfang félagsmanns í gagnagrunni.

Persónublað félagsmanns

Persónublaðið veitir góða yfirsýn yfir stöðu hvers félagsmanns. Á því má finna yfirlit yfir félagsgjöld (sem endurspegla heildarlaun), skipt eftir mánuðum og atvinnurekendum. Jafnframt má sjá réttindi í sjóðum og hvernig þau hafa verið nýtt. Í flestum tilvikum er hægt að sækja ítarlegri upplýsingar um hvert atriði.

  1. Félagsmaður á sérstakt svæði fyrir flest undirkerfi Tótal. Þannig er hægt að sjá alla styrki úr sjúkrasjóði, yfirlit yfir sjúkradagpeninga, orlofsleigur, fræðslustyrki og iðgjaldasögu yfir lengri tíma en birtist á persónublaðinu.
  2. Tungumálafáni sýnir á hvaða tungumáli félagsmaður skoðar Mínar síður. Það hjálpar starfsfólki að ákveða á hvaða tungumáli til dæmis skeyti til viðkomandi félagsmanns fara. Þegar send eru fjöldaskeyti á margt félagsfólk og þau eru á þremur tungumálum – ræður þessi merking hvaða skeyti hver félagsmaður fær.
  3. Hér er hægt að breyta hluta persónuupplýsinga, svo sem að setja inn eða breyta upplýsingum um símanúmer, netfang og bankareikning. Einnig er hægt að skrá annað póstfang ef félagsmaður hefur aðsetur annars staðar en á lögheimili.
  4. Hér er hlekkur til að bóka orlofsíbúð eða orlofshús. Einnig kemur fram hversu marga leigudaga félagsmaður getur bókað og punktastöðu.
  5. Hér eru hlekkir til að sækja annars vegar um styrk úr sjúkrasjóði og hins vegar sjúkradagpeninga. Einnig kemur hér fram hversu mikil réttindi félagsmaður hefur. Félagsmaður sem er að hefja störf getur verið nokkra mánuði að öðlast 100% rétt.
  6. Hér er hlekkur á umsókn úr menntasjóðum og hér sést í hvaða menntasjóðum félagsmaður á réttindi. Ef félagsmaður á rétt í tveimur menntasjóðum, samtals 100% – leggur félagið réttinn saman til að greiða fullan styrk.
  7. Hér er flýtisýn á það sem er í gangi hverju sinni – sem sagt tvær síðustu hreyfingar í hverjum flokki í kerfinu.

Að bóka orlofseign

Til að komast inn á bókunarsíðuna, er smellt á bláa takkann við Full réttindi í orlofsrammanum á persónublaðinu. Á myndinni má sjá við Páskar 2024 að hægt sé að ýta á bláa takkann þar til hliðar til að sækja um orlofshús yfir páskatímabilið.

Á bókunarsíðunni sjást landsvæðin með orlofseignum félagsins. Þegar smellt er á eitthvert svæðið opnast listi yfir eignirnar þar (Vestfirðir í þessu dæmi hér fyrir neðan) og um leið sést bókunarstaða hverrar eignar á viðkomandi tímabili.

Bókunarsvæði

Hægt er að framkvæma ýmsar aðgerðir og fá upplýsingar þegar farið er á bókunarsvæðið á persónublaðinu, svo sem yfirlit yfir fyrri leigur og fleira.

1. Félagsmenn geta nálgast leigusamning sinn hér um leið og leiga er fullgreidd. Leigusamningur verður ekki til fyrr en leiga er greidd – en þá birtist hann hér hægra megin í pdf formi.

2. Ef félagsmaður vill fá leigusamninginn í tölvupósti er nóg að smella á umslag sem mun umslag birtast hægra megin við bókunina.

3. Óski félagsmaður eftir að setja athugasemd við leigu – til dæmis ábendingu til félagsins um eitthvað sem betur má fara – mun birtast lítill spjallgluggi hér hægra megin sem hægt verður að smella á.

4. Þegar félagsmaður bókar orlofsleigu, þarf að greiða 1.000 króna staðfestingargjald. Um leið stofnast krafa í heimabanka félagsmanns, fyrir eftirstöðvum leigufjárhæðar. Kröfuna þarf að greiða í síðasta lagi 10 dögum fyrir upphaf leigu, annars fellur leigan niður.

Að sækja um styrk

Þegar smellt er á Sækja um styrk í sjúkrasjóðsrammanum á persónublaðinu, birtist þessi síða

1. Það fyrsta sem þarf að velja er tegund styrks úr felliglugga. Þá birtast upplýsingarnar á skýringarmyndinni. Þar kemur fram, hver er hámarksfjárhæð þessarar styrktegundar, hvaða gögnum þarf að skila og hvaða skilyrði gilda um þennan tiltekna styrk. Þessar upplýsingar eru mismunandi eftir því hvaða styrkur þetta er.

2. Næst er að hlaða upp þeim gögnum sem þurfa að liggja fyrir til að hægt sé að afgreiða umsókn, til dæmis greiðslukvittun.

3. Skrá þarf upplýsingar um útgefanda kvittunar.

4. Upplýsingar um umsækjanda þurfa að liggja fyrir, svo sem; nafn, kennitala, farsími, netfang og bankaupplýsingar. Öðruvísi er ekki hægt að ljúka afgreiðslu. Liggi þessar upplýsingar fyrir í kerfinu, birtast þær sjálfkrafa hér.

5. Hér birtast upplýsingar um réttindi umsækjanda í sjóðnum til að fá þann styrk sem verið er að sækja um.

6. Hafi atvinnurekandi ekki skilað inn réttum iðgjöldum, er hægt að leiðrétta það með því að hlaða upp launaseðli og slá inn iðgjaldafjárhæð. Mistök eða trassaskapur atvinnurekanda á ekki að bitna á félagsmanni.

Að versla í vefverslun Eflingar

Í vefverslun Eflingar er hægt að kaupa Icelandair afsláttarmiða, Útilegukortið, Veiðikortið, miða á viðburði og fleira.

Þegar Mínar síður hafa verið opnaðar er smellt á Vefverslun efst til miðju. Þá birtist listi yfir valmöguleika sem félagsmanni býðst að kaupa á hagstæðu verði.

Til þess að kaupa vöru er smellt á myndina af innkaupakörfunni sem sjá má hér fyrir neðan. Þegar gengið hefur verið frá kaupum fær félagsmaður tölvupóst með kvittun fyrir kaupum.

Sjúkradagpeningar

Umsóknarform fyrir sjúkradagpeninga lítur að flestu leyti út eins og formið fyrir styrkina. Mestu munar, að skila þarf inn ýmsum viðbótarvottorðum, svo sem læknisvottorði og vottorði atvinnurekanda, auk upplýsinga um persónuafslátt.

Umsókn í menntasjóði

Umsóknarformið fyrir styrki úr menntasjóði er í langflestum atriðum sambærilegt við umsóknir úr sjúkrasjóði. Félagsmenn í Eflingu geta átt rétt á styrkjum úr þremur menntasjóðum, eftir því hvaða kjarasamningi þeir starfa samkvæmt. Kerfið velur réttan sjóð. Umsækjandi þarf fyrst að velja tegund styrks úr felliglugga. Næst þarf hann að hlaða upp kvittun og skrá upplýsingar um útgefanda kvittunar. Loks þarf umsækjandi að tryggja að nauðsynlegar upplýsingar liggi fyrir um netfang, símanúmer og bankareikning, til að hægt sé að afgreiða styrkinn. Félagsmannasjóður er fyrir félagsmenn sem fá greidd laun samkvæmt kjarasamningum félagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga. Greitt er úr sjóðnum 1. febrúar ár hvert, næst 2024. Félagsmenn sem félagið er með allar upplýsingar um, fá hana greidda án þess að gera nokkuð. Vanti upplýsingar um bankareikning, stofnast umsókn um leið og þessar upplýsingar eru rétt færðar í kerfið. Félagsmaður getur gert það sjálfur á persónublaðinu í Tótal.