Farið verður yfir lög og reglur um skattkerfið á Íslandi. Hverjar skyldur skattgreiðenda eru og hver munurinn er á launagreiðslu og verktakagreiðslu. Þá verður fjallað um gerð skattframtals og hvaða kostnað er hægt að nýta til frádráttar á skatti.
Boðið er upp á námskeiðið á ensku og pólsku.
Enska: 26. febrúar 2025, kl. 19-21.
Pólska: 27. febrúar 2025, kl. 19-21.
Kennsla fer fram í húsnæði Eflingar, Guðrúnartúni 1, 4. hæð og er félagsmönnum að kostnaðarlausu.