Nýr samningur undirritaður við Vélamiðstöð ehf
Gengið var frá samkomulagi við Vélamiðstöð ehf. þann 27. janúar sl. sem tryggir félagsmönnum hjá Vélamiðstöð sambærileg kjör og kveðið er á um í nýjum samningi Reykjavíkurborgar við Eflingu-stéttarfélag.
Á meðfylgjandi mynd má sjá samningsaðila við undirritunina. Frá vinstri; Ragnar Ólason, aðaltrúnaðarmaður hjá Reykjavíkurborg, Pétur Þorbergsson, trúnaðarmaður hjá Vélamiðstöð, Gísli Erlendsson, forsvarsmaður Vélamiðstöðvar og Harpa Ólafsdóttir, formaður kjaramálasviðs Eflingar.