Keppa í uppvaski í Svíþjóð

21. 04, 2006

Íslendingar

Keppa í uppvaski í Svíþjóð

Landsliðið í uppvaski heldur utan til Svíþjóðar n.k. laugardaginn til að keppa í Norðurlandamótinu í uppvaski sem fram fer þriðjudaginn 25. apríl á sýningunni Castro Nord.

Íslensku keppendurnir lentu í fimm efstu sætunum eftir harða keppni á Íslandsmótinu í uppvaski sem frá fór 30. mars s.l. á sýningunni Matur 2006 og unnu sér þar með rétt til  þátttöku á mótinu.

Liðið skipa Erna Aðalheiður Karlsdóttir nýkrýndur Íslandsmeistari, Da  Cadapon og Songmvang Wong Wan sem vinna á Landspítalanum, Brynhildur Magnúsdóttir frá Hrafnistu og Hugrún Ólafsdóttir frá Alcan.