Dagsferðir Eflingar í september
Markverðir staðir í Borgarfirði
Dagsferðir Eflingar hafa verið mjög vinsælar undanfarin ár. Í ár er stefnan tekin á Borgarfjörð. Farið verður um Þingvelli og Kaldadal í Hvítársíðuna að Fljótstungu og staldra við í hellinum Víðgelmi. Þaðan er haldið í Reykholt þar sem staðurinn er skoðaður og síðan er boðið upp á kaffihlaðborð. Nokkrir staðir verða heimsóttir á leiðinni til Reykjavíkur, líklega komið við í Landnámssetrinu í Borgarnesi sem er nýopnað og lýsir vel landnámstíma þessa svæðis. Þetta verður skemmtileg ferð á nýja og spennandi staði sem ekki hafa verið skoðaðir í dagsferðurm Eflingar áður.