Efling stendur með stéttlausum á Indlandi


Jónas Þórisson, framkvæmdarstjóri Hjálparstofnunar Kirkjunar, Guðmundur Þ Jónsson, 2. varaformaður Eflingar og Sigurrós Kristinsdóttir, 1. varaformaður undirrituðu samninginn.

 

Efling stendur með stéttlausum á Indlandi

Hefur gerbreytt lífi fjölda fólks

– segir Jónas Þórir Þórisson

Það er mikil ánægja með þetta verkefni af hálfu Hjálparstarfs kirkjunnar og hjá Social Action Movement á Indlandi, sagði Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar við undirritun samnings hjá Eflingu-stéttarfélagi. Í sama streng tóku þau Sigurrós Kristinsdóttir og Guðmundur Þ Jónsson, formenn Eflingar þegar þau framlengdu samninginn við SAM sem hefur skilað stéttleysingjum í Tamil Nadu héraði í Suður Indlandi miklum árangri.
Fram kom hjá Jónasi Þóri að þegar hann heimsótti Tamil Nadu hérað á síðastliðnu hausti hafi forystumenn SAM hreyfingarinnar þakkað Eflingu fyrir þann mikla stuðning sem félagið hefur sýnt með fjárstuðningi samkvæmt samningi sem Hjálparstarf kirkjunnar hér á landi hefur rumsjón með.
Þetta hefur gerbreytt lífi fjölda fólks, segir hann. Stuðningur Eflingar hefur þýtt að mikill fjöldi fólks hefur fengið nýja þekkingu og fræðslu til að takast á við lífið. Bara það að geta skrifað nafnið sitt eða lesið sér til um rétt sinn og kjör, gerir það að verkum að einstaklingarnir verða sterkari til að takast á við daglegt líf.
Á síðustu árum hafa orðið til tryggingasjóðir launamanna á þessu svæði og þannig hefur fólkið fengið lágmarkstryggingar í slysum, veikindum og við andlát náinna ættingja. Þetta gerist með þeim hætti að fólkið sjálft leggur fram sín framlög á móti stuðningi og þannig verður samhjálpin til eins og hér á landi þegar verkalýðshreyfingin átti þátt í að reisa alþýðu þessa lands úr örbirgð.
Ein ánægjuleg breyting við starf SAM á Suður  Indlandi er að þar hefur orðið til öflug verkalýðshreyfing meðal verkamanna í sykurreyrnum. Félag þeirra er orðið sjálfstætt frá SAM og getur tekist á við atvinnurekendur.
Þvottafólkið stendur einnig betur eftir verkfall sem það gerði um árið, en áður fyrr var algengt að það fengi greitt í matarleyfum, en eftir verkfallið varð niðurstaðan að greiða ber í peningum.
Það er hægt að segja mörg dæmi um þann árangur sem orðið hefur af framlagi Eflingar. Hann sagði frá ungum þvottamanni sem opnaði þvottahús og nú er hann með fólk í vinnu og ákveður verðlag á sinni þjónustu. Þannig hafa aðstæður breyst mikið til bóta á síðustu árum, segir hann.
Formenn Eflingar sögðu að mikil samstaða væri um það í stjórn Eflingar að styðja við þetta starf og vel væri að því staðið, bæði af hálfu Hjálparstarfsins og SAM á Indlandi.