Íslenskunám á LHS

18. 12, 2007

Íslenskunám á LHS

Nemendur ánægðir með námsárangurinn

Erlendir starfsmenn sem vinna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi hafa sýnt íslenskunámi sem þeim er boðið að sækja í vinnutíma mikinn áhuga og hafa nokkrir hópar útskrifast að undanförnu. Þessi hópur útskrifaðist af framhaldsnámskeiði 1 í íslensku þann 7. desember sl.  Ekki er annað að sjá en að nemendurnir séu ánægðir með viðurkenningarskjalið sem Peter Vosincky, leiðbeinandi afhenti  þeim í námslok.