Íslenskunám á LHS
Nemendur ánægðir með námsárangurinn
Erlendir starfsmenn sem vinna á Landspítala Háskólasjúkrahúsi hafa sýnt íslenskunámi sem þeim er boðið að sækja í vinnutíma mikinn áhuga og hafa nokkrir hópar útskrifast að undanförnu. Þessi hópur útskrifaðist af framhaldsnámskeiði 1 í íslensku þann 7. desember sl. Ekki er annað að sjá en að nemendurnir séu ánægðir með viðurkenningarskjalið sem Peter Vosincky, leiðbeinandi afhenti þeim í námslok.