Samningur kynntur í HB Granda 28. febrúar 2008
Efling býður kynningu á kjarasamningnum
Fulltrúar Eflingar kynntu í gær kjarasamninginn í HB Granda ásamt trúnaðarmanni á vinnustað og fóru yfir helstu breytingar sem nýr kjarasamningur hefur í för með sér og þá sérstaklega þær sem snúa að fiskvinnslunni.
Nú ætti kynningarefni ásamt kjörseðli að hafa borist til félagsmanna Eflingar sem taka mið af kjarasamningi á almennum markaði. Við viljum hvetja félagsmenn til að hafa samband ef eitthvað er óljóst og minnum jafnframt á að hægt er að óska eftir kynningu á vinnustað.