Faghópur leikskólaliða stofnaður í gærkvöldi
Það mun heyrast vel frá þessum hópi
– segir Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður
Þetta var ótrúlega skemmtilegur fundur í gær þegar við stofnuðum faghóp leikskólaliða, segir Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar. Það er mín tilfinning að þessi hópur eigi eftir að láta heyra í sér í félaginu og við eigum að vera mjög ánægð með það. Það sem einkenndi þennan fund var mikill áhugi á stofnun hópsins og viðbótarnámi og um þetta allt mynduðust fjörugar umræður, segir hún.
Meira
Faghópurinn var stofnaður á fundinum og gengið var frá samþykktum fyrir hann. Ný stjórn var kosinfyrir hópinn og aðalfundur ákveðinn 28. apríl í Kiwanishúsinu. Þar ætlum við að fá gestafyrirlesara og niðurstöður úr könnun um framhaldsnám verða kynntar. Þetta er rosalega áhugasamur og öflugur hópur, segir Sigurrós.