Samningar við ríki og hjúkrunarheimili
Viðræður þokast áfram
Fundað var með forsvarsmönnum stærstu hjúkrunarheimilanna fyrir helgi og samninganefnd ríkisins um helgina. Segja má að viðræður séu komnar á visst skrið og standa enn vonir til þess að hægt sé að ljúka samningum fljótlega. Í þessum viðræðum er verið að tala um krónutöluhækkun svipað og á almenna markaðnum og samningstíma til haustsins 2009. Þá hafa einnig viðræður átt sér stað um breytingu á vaktavinnukerfinu.