Aðgerðarstjórn ASÍ vegna efnahagsástandsins
Alþýðusamband Íslands hefur komið á fót sérstakri aðgerðarstjórn með þátttöku landssambanda og stærstu félaga innan hreyfingarinnar. Tilgangurinn er að upplýsa og aðstoða aðildarsamtök ASÍ, trúnaðarmenn og samstarfsaðila á vinnumarkaði í því óvissuástandi sem nú ríkir í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar.
Þar sem búist er við auknum uppsögnum á næstunni vill Efling-stéttarfélag beina því til félagsmanna sinna og trúnðarmanna að hafa samband við félagið ef um samdráttaraðgerðir eða ef uppsagnir eru fyrirsjáanlegar í fyrirtækjunum. Fræðslusjóðir og starfsmenntasjóðir stéttarfélaganna munu á næstunni skoða það með fræðsluaðilum innan ASÍ hvernig auknu atvinnuleysi og erfiðleikum í atvinnulífinu verður mætt.