Skrifað undir kjarasamning

Skrifað undir kjarasamning við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs

Eftir löng og ströng fundarhöld hjá Ríkissáttasemjara var skrifað undir kjarasamning aðila föstudaginn 3. júlí síðastliðinn.  Samningurinn ber þess óneitanlega merki að vera gerður á mjög erfiðum tímum í íslensku samfélagi og er megináhersla samningsins á að lyfta eins og mögulegt er lægstu launatöxtunum.  Einnig var gerð framkvæmdaáætlun sem miðar að því að skoða, skerpa á og leirétta ýmislegt í vinnuumhverfi þeirra sem samningurinn nær til.
Efling mun kynna félagsmönnum samninginn á næstu dögum og vikum. Stefnt er að því að sameiginlegri atkvæðagreiðslu um samninginn verði lokið 14. ágúst 2009.

Aðalatriði samningsins:

  • Gildistími samnings er 1. júlí 2009 – 30. nóvember 2010 með fyrirvara  um endurskoðun fyrir 31. október 2009.
  • Ný launatafla tekur gildi frá 1. júlí 2009.
  • Launataxtar. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að 180 þúsund hækka 1. júlí 2009 og 1. nóvember 2009 um kr. 6.750.- í hvort skipti en hækka minna að kr. 210.000.- sjá nánar meðfylgjandi skjal. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu umfram kr. 210.000.- eru óbreytt.  Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að kr. 285.000.-  hækka 1. júní 2010 um kr. 6.500.- en hækka minna að kr. 310.000. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu umfram kr. 310.000.- eru óbreytt.
  • Starfsmenn í tímamældri ákvæðisvinnu og ræstingu samkvæmt fermetragjaldi hækka, sjá nánar meðfylgjandi skjal.
    Lágmarkslaun fyrir fullt starf skulu vera kr. 157.000.- frá 1. júlí 2009 og kr. 165.000.- frá 1. júní 2010 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun.
  • Orlofsuppbót árið 2010 verður kr. 25.800.- 
  • Persónuuppbót í desember 2009 verður kr. 45.600.- og í desember 2010 kr. 46.800.-
  • Fatapeningar og reiknitala kaupauka Vegagerðarinnar hækka um 0,7% þann 1. júlí nk., 0,6% 1. nóvember nk. og 1,5% 1. júní 2010.
  • Sáttanefnd skal skipuð sem tekur til umfjöllunar mál er varða stefnumarkandi túlkanir og álitaefni er varða framkvæmd og þróun samningsins.
  • Komið verður á samstarfi á sviði mannauðsmála.
  • Unnið verður að samræmingu á texta kjarasamninga.
  • Unnið verður að málefnum vaktavinnufólks á samningstímabilinu.
  • Lokið verður endurskoðun tryggingarskilmála og sameiginlegar reglur gefnar út á haustmánuðum.
  • Unnið verður að tölfræði- og upplýsingagjöf í samstarfi við Hagstofu og ráðgjafanefnd.

Samningurinn (PDF)

Framkvæmdaáætlunin (PDF)