Skrifað undir kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga
Rétt í þessu var skrifað undir samning um framlengingu og breytingar á kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Eflingar stéttarfélags. Þau sveitarfélög sem um ræðir eru Kópavogsbær, Seltjarnarnesbær, Hveragerðisbær og sveitarfélagið Ölfus.
Megináhersla var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum.
Félagsmönnum verður sendur kynningarbæklingur á næstunni og er stefnt að því að atkvæðagreiðslu um samkomulagið ljúki ekki seinna en 14 ágúst næstkomandi.
Aðalatriði samningsins:
• Gildistími samnings er 1. júlí 2009 – 30. nóvember 2010.
• Ný launatafla tekur gildi frá 1. júlí 2009.
• Launataxtar. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að kr. 180.000 hækka 1. júlí 2009 og 1. nóvember 2009 um kr. 6.750.- en hækka minna frá 180.000 kr. að 210.000. Laun umfram 210.000 kr í júlí og 220.000 kr. í nóvember 2009 taka ekki hækkunum. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu allt að kr. 180.000.- hækka 1. júní 2010 um kr. 6.500.- en hækka minna að kr. 225.000. Mánaðarlaun fyrir dagvinnu umfram kr. 225.000.- eru óbreytt.
• Starfsmenn í tímamældri ákvæðisvinnu og ræstingu samkvæmt fermetragjaldi hækka, sjá nánar meðfylgjandi skjal.
• Lágmarkslaun fyrir fullt starf skulu vera kr. 157.000.- frá 1. júlí 2009, kr. 165.000.- frá 1. nóvember 2010 og kr. 170.000.- frá 1. júní 2010, fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun.
• Orlofsuppbót árið 2010 verður kr. 25.800.-
Félagsmönnum verður sendur kynningarbæklingur á næstunni og er stefnt að því að atkvæðagreiðslu um samkomulagið ljúki ekki seinna en 14 ágúst næstkomandi.