Samkomulagið við hjúkrunarheimilin
Yfirgnæfandi stuðningur
Í dag var talið í atvkæðagreiðslu um samkomulagið um breytingar á kjarasamningi Eflingar-stéttarfélags og Vlf. Hlífar í Hafnarfirði við SFH – Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni samþykkti samkomulagið.
Atkvæði féllu þannig að 263 eða 85% samþykktu samkomulagið.
41 eða 13% höfnuðu samningnum
Auðir og ógildir seðlar voru 5
Samkomulagið er því samþykkt.