Aðildarfélagar Gildis-lífeyrissjóðs.
Fræðslu- og kynningarfundur Gildis
Gildi-lífeyrissjóður boðar til fræðslu og kynningarfundar fyrir sjóðfélaga miðvikudaginn 23. nóvember nk. kl. 17.00 á Hilton Reykjavík Nordica.
Á fundinum mun Benedikt Jóhannesson tryggingastærðfræðingur fjalla um verðtryggingu og áhrif afnáms hennar á lífeyrissjóði, Sigurður B. Stefánsson sjóðstjóri í eignastýringu Landsbankans mun fjalla um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða og Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Gildis mun fara yfir stöðu sjóðsins.