Skattframtalið 2011

28. 02, 2012

skattframtal                                                                     Skattframtalið

Viltu fá aðstoð við að telja fram?

Efling – stéttarfélag mun í ár sem fyrr bjóða félagsmönnum uppá aðstoð við gerð skattframtala. Félagsmenn geta pantað tíma í síma 510 7500 frá og með mánudeginum 5. mars nk.
Gert er ráð fyrir einföldum framtölum, en ef um flóknari framtöl er að ræða svo sem um kaup og sölu eigna þarf að tilgreina það sérstaklega. Aðstoðin við skattframtölin miðast við félagsmenn og maka þeirra. Geta skal fjölda skattframtala þegar tími er pantaður. Nauðsynlegt er að hafa veflykil meðferðis í viðtalið.

Hægt er að panta viðtal á eftirtöldum dögum. Laugardaginn 17. mars og sunnudaginn 18. mars og mánudaginn 19. mars.  Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu félagsins og bóka sig sem fyrst. Það eru starfsmenn LAG lögmanna sem leiðbeina fólki í gegnum skattafrumskóginn eins og fyrr.
 
Á skrifstofu Eflingar má fá allar nánari upplýsingar um viðtalstíma og gögn sem hafa þarf meðferðis í viðtalið.