Námskeið fyrir atvinnuleitendur
Atvinnuleysi og fjölskyldan
Efling stéttarfélag býður félagsmönnum sínum í atvinnuleit upp á námskeiðið Atvinnuleysi og fjölskyldan miðvikudaginn 17. apríl kl. 13-15 í Sætúni 1 – 4 hæð, 105 Reykjavík. Námskeiðið er félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Námskeiðið fjallar sérstaklega um áhrif atvinnuleysis fjölskyldumeðlima á fjölskyldulífið og parasambönd og er í samvinnu við Lifandi ráðgjöf.
Fjallað verður meðal annars um:
Áhrif atvinnuleysis á sjálfsmynd og sjálfstraust
Ríkjandi tilfinningar í kjölfar atvinnuleysis svo sem óöryggi, kvíði, sorg, reiði og félagsleg einangrun
Áhrif atvinnuleysis á parasamband og foreldrahlutverkið
Fjallað verður um hvernig samskipti og hlutverkaskipti innan fjölskyldunnar getur breyst í kjölfar atvinnuleysis Hvað er til ráða? Hverjar eru lausnirnar? Hvernig er hægt að breyta umtalaðri reynslu í ávinning og bættra lífsgæða fyrir alla aðila?
Skráning er í gangi hjá Eflingu stéttarfélagi í síma 510 7500 eða á netfang fjola@efling.is Skráningarfrestur er til og með 14. apríl nk.