Allir öruggir heim

16. 05, 2013

endurskin1                                                                              Efling stéttarfélag stoltur aðili að verkefninu

„Allir öruggir heim“

-endurskinsvesti fyrir 6 ára börn

Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við Alcoa Fjarðarál, Dynjanda ehf, EFLA verkfræðistofu, Eflingu stéttafélag, HB Granda, Isavia, Landsvirkjun, Neyðarlínuna, Tryggingamiðstöðina, Umferðarstofu og Þekkingu, gáfu á dögunum öllum skólum á landinu endurskinsvesti til að nota í vettvangsferðum barna í 1. bekk. Um 4500 börn eru í árganginum á landinu öllu.  Vestin eru af vandaðri gerð og er það von þeirra sem að átakinu standa að þau nýtist skólunum næstu árin.

Efling stéttarfélag er stoltur aðili að verkefninu og er þema þess „Allir öruggir heim“ því öll eigum við rétt á því að koma örugg heim og  á það ekki síst við um þau sem eru að hefja skólagöngu sína.

Vettvangsferðir eru rótgróinn hluti af skólastarfi. Til að tryggja öryggi nema meðan á þeim stendur er mikilvægt að þeir séu vel sýnilegir.  Ökumenn sjá einstaklinga með endurskin fimm sinnum fyrr en þá sem eru ekki með neitt. Endurskinsvesti ætti að nota allt árið um kring.

Það er von Eflingar að endurskinsvestin verði til þess að bæta öryggi skólabarna í umferðinni.