Reykbindisnámskeið 2013

13. 09, 2013

krabbameinsfelagid

Viltu hætta að reykja?

Reykbindindisnámskeið Krabbameinsfélags Reykjavíkur

Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja. Næsta námskeið hefst mánudaginn 14. október 2013. Þátttakendur hittast átta sinnum á þriggja mánaða tímabili. Að námskeiði loknu er þátttakendum fylgt eftir. Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu og ráðgjöf til að hætta að reykja ásamt stuðningi til að takast á við reyklausa framtíð. Leiðbeinandi er Ingibjörg K. Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur. Hægt er að skrá sig á reykleysi@krabb.is eða í síma 540 1900. Nánari upplýsingar eru á vef Krabbameinsfélagsins: http://www.krabb.is/reykleysi

1. fundur er mánudaginn 14. október kl. 17–18: Undirbúningsfundur.
2. fundur er mánudaginn 21. október kl. 17–18: Undirbúningsfundur.
3. fundur er mánudaginn 28. október kl. 17–18: Allir hættir að reykja!
4. fundur er fimmtudaginn 31. október kl. 17–18.
5. fundur er mánudaginn 4. nóvember kl. 17–18.
6. fundur er mánudaginn 11. nóvember kl. 17–18.
7. fundur er mánudaginn 25. nóvember kl. 17–18.
8. fundur er mánudaginn 27. janúar 2014 kl. 17–18.

Fagleg hjálp bætir árangur

Félagsmenn Eflingar geta fengið allt að 15.000kr niðurgreiðslu úr sjúkrasjóði vegna reykbindindisnámskeiða. Nánari upplýsingar hér.