Nýr aðfarasamningur undirritaður
Skrifað var undir nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins þann 21. desember síðast liðinn sem gildir frá 1. janúar 2014 til 31. desember 2014. Hér er um að ræða aðfarasamning sem felur í sér að auk þeirra launabreytinga sem samið var nú um til eins árs verður unnið að gerð langtímasamnings sem á að tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífi og kaupmáttaraukningu til framtíðar.
Með nýjum kjarasamningi var sérstök áhersla á hækkun lægstu launa og hækkar því tekjutryggingin um 4,9% eða 10.000 kr. og fer úr 204.000 kr. í 214.000 kr. Almenn launahækkun er 2,8%. Launatafla hækkar um 8.000 kr. auk tilhliðrunar um einn launaflokk.
Strax í upphafi nýs árs munu félagsmenn fá sent kynningarefni um samninginn og hann borinn undir atkvæði. Niðurstöður munu liggja fyrir þann 22. janúar næstkomandi.
Helstu ávinningar samningsins
– Lágmarkstekjutrygging hækkar um 10.000 kr. eða úr 204.000 kr. í 214.000 kr.
– Sérstök áhersla á hækkun lægstu launa.
– Almenn launahækkun.
– Aukið fjármagn og kraftur settur í starfsmenntamál.
Aðgerðir stjórnvalda
– Efri mörk í lægsta þrepi tekjuskatts hækka úr 256.000 kr. í 290.000 kr. Skatthlutfall í miðþrepi lækkar úr 25,8% í 25,3%.
– Stærstu sveitarfélög landsins hafa tekið áskorun verkalýðshreyfingarinnar og hækka ekki gjaldskrár sínar um áramót.
– Gjaldskrárhækkanir ríkisins verða ekki meiri en 2,5% á ári, ríkisstjórnin mun endurskoða breytingar á gjöldum sem þegar hafa verið samþykktar.
– Unnið verði að því að við framkvæmd kjarasamninga verði miðað við umfang umsaminna launahækkana ásamt samningsbundnum starfsaldurshækkunum og starfsþróunar þannig að hún samrýmist verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands.
– Ráðist verður í markvissar aðgerðir til stuðnings kaupmætti.
– Samstilltar aðgerðir samningsaðila til að halda verðbólgu innan 2,5% markmiðs Seðlabanka Íslands.
Mikilvæg félagsleg umbótamál
– Unnið verður áfram að jöfnun lífeyrisréttinda á milli almenna og opinbera markaðarins.
– Umbætur í húsnæðismálum þar sem áhersla verður lögð á húsnæðisöryggi og húsnæðiskostnað á viðráðanlegum kjörum.
Kjarasamning Flóabandalagsins og SA má lesa í heild sinni hér.
Kjarasamning aðildarsamtaka ASÍ og SA má lesa í heild sinni hér.
Yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna má sjá hér.
Minnisblað forsætisráðherra í tengslum við gerð kjarasamninganna má sjá hér.