Framtalsaðstoð 2014

28. 02, 2014

skattframtal

Aðstoð við gerð skattframtala

Í ár eins og áður mun Efling – stéttarfélag bjóða félagsmönnum uppá aðstoð við gerð skattframtala. Hægt er að panta tíma í s. 510-7500 frá og með mánudeginum 3. mars og verður aðstoðin veitt helgina 15. – 16. mars. Nauðsynlegt er að bóka tíma og koma með veflykil.  

Gert er ráð fyrir einföldum framtölum, en ef um flóknari framtöl er að ræða svo sem um kaup og sölu eigna þarf að tilgreina það sérstaklega. Aðstoðin við skattframtölin miðast við félagsmenn og maka þeirra. Geta skal fjölda skattframtala þegar tími er pantaður. Á skrifstofu Eflingar má fá allar nánari upplýsingar um viðtalstíma og gögn sem hafa þarf meðferðis í viðtalið. Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu félagsins og bóka sig sem fyrst. Það eru starfsmenn LAG lögmanna sem leiðbeina fólki í gegnum skattafrumskóginn eins og fyrr.