Atkvæðagreiðsla um nýjan samning við ríkið

atkvaedagreidsla_um_rikissamning

Atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning við ríkið

Þessa dagana standa yfir kjörfundir og kynningarfundir um nýjan kjarasamning Eflingar, Hlífar og VSFK við ríkið. Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá ríkinu eru hvattir til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og kynna sér vel efni samninganna sem finna má á heimasíðunni en einnig hefur efnið verið sent til starfsmanna ríkisins sem eru í Eflingu.

Sjá kjörstaði og fundi:
Kjörstaðir verða opnir fyrir starfsmenn Landspítalans á eftirtöldum stöðum:

Þvottahúsinu Tunguhálsi, fimmtudaginn  10. apríl    kl. 10.00
Vífilsstöðum, fimmtudaginn  10. apríl    kl. 14.00
Landakoti, föstudaginn  11. apríl    kl. 14.00
Matsalnum Hringbraut, mánudaginn  14. apríl    kl. 14.30
Matsalnum Fossvogi, þriðjudaginn  15. apríl    kl. 14.30

Þá verður opinn kjörfundur á skrifstofu Eflingar Sætúni 1 eftirtalda daga:

Fimmtudaginn 10. apríl, föstudaginn 11. apríl, mánudaginn 14. apríl og þriðjudaginn 15. apríl verður kjörfundur opinn frá kl. 8:15 til 16:00
Miðvikudaginn 16. apríl verður kjörfundur opinn frá kl. 8:15 til kl. 12:00.
Kynningarfundur á nýgerðum kjarasamningi verður mánudaginn 14. apríl kl 13:00 á skrifstofu Eflingar Sætúni 1, 4. hæð.

Frekari upplýsingar um samninginn má nálgast hér.