Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur

11. 04, 2014

talning_atkvaeda_rvk_a

Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur

Atkvæði voru í dag talin í atkvæðagreiðslu Eflingar um kjarasamning við Reykjavíkurborg sem undirritaður var 7. mars sl. Um er að ræða aðfarasamning sem er hliðstæður þeim sem gerður var á almenna markaðnum og gildir hann frá 1. febrúar 2014 til 30. apríl 2015.Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi:Já  sögðu 242 eða  57,4 %Nei  sögðu  178    eða   42,2 %Auðir seðlar og ógildir voru 2Samkvæmt þessum tölum er kjarasamningur Eflingar við Reykjavíkurborg samþykktur. Á kjörskrá voru alls 1880 félagsmenn. Atkvæði greiddu 422 félagsmenn eða 22,3 %.Nánari upplýsingar um samninginn má finna á heimasíðu Eflingar.