Grunnmenntaskólinn
Ert þú með stutta skólagöngu að baki? Viltu byrja aftur í skóla?
Þá er Grunnmenntaskólinn nám fyrir þig. Tilvalinn grunnur að meira námi. Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustundir fyrir fólk 20 ára og eldri. Lögð er áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir og einstaklingsmiðað nám.
Næstu hópar: 18. mars 2013 og stendur í rúma þrjá mánuði. Kennt verður eftir hádegi fimm daga vikunnar. 12:20-16:00
Við getum enn bætt við nemendum. Fræðslusjóðir Eflingar styrkja námið
Sjáðu kynningarmyndband um Grunnmenntaskólann hér
Markmið
• Að byggja upp grunn í íslensku, ensku, stærðfræði og tölvum
• Að auka sjálfstraust til náms
• Að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð
• Að þjálfa samvinnu í verkefnagerð
• Að styrkja stöðu á vinnumarkaði