Bleiki dagurinn 2014 er fimmtudagurinn 16. október og þann dag verður Leitarstöð Krabbameinsfélagsins opin frá kl. 8 – 16 fyrir allar þær konur sem ekki hafa skilað sér í leghálskrabbameinsleit á réttum tíma. Efling stéttarfélag hvetur allar „týndar“ konur að mæta í skoðun og minnir á að stéttarfélagið endurgreiðir skoðunina að fullu. Hægt er að sækja um endurgreiðsluna á þar til gerðu umsóknareyðublaði ásamt því að skila inn frumriti af greiðslukvittun og ljósriti af síðasta launaseðli.Allur október er helgaður Bleiku slaufunni og er tilgangurinn að vekja athygli á krabbameini hjá konum og forvörnum sem og þetta er fjáröflunarátak.