Verkakvennafélagið Framsókn 100 ára
Í tilefni þess að þann 25. október n.k. verða 100 ár liðin frá stofnun Verkakvennafélagsins Framsóknar standa Efling-stéttarfélag, Alþýðusamband Íslands, Starfsgreinasambandið, Jafnréttisstofa og Kvennasögusafn Íslands fyrir málþingi í Iðnó föstudaginn 10. október.
Húsið opnar kl. 12:30, dagskrá hefst kl. 13:00.
Dagskrá:
12:30 Húsið opnar – Myndasýning og harmónikkuleikur
13:00 Setning – Sigurður Bessason, formaður Eflingar-stéttarfélags
13:10 Af hverju sérfélög verkakvenna á Íslandi?
Dr. Sumarliði Ísleifsson, sagnfræðingur
13:30 Sambland af sælu og kvöl
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra
13:50 Pallborðsumræður – Horft um öxl
Fyrrverandi stjórnarkonur í Verkakvennafélaginu Framsókn
Pallborði stýrir Maríanna Traustadóttir, ASÍ
14:30 Kaffi
14:50 Kynjamyndir: Umönnun og ræstingar eða sjórinn og álið?
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS
15:10 Pallborðsumræður – Staða verkakvenna í dag
Kristín Ástgeirsdóttir, jafnréttisstýra
Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar-stéttarfélags
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
Pallborði stýrir Halldór Oddsson, ASÍ
15:50 Ráðstefnuslit – Signý Jóhannesdóttir, varaforseti ASÍ
Ráðstefnustjóri: Auður Styrkársdóttir, forstöðukona Kvennasögusafns Íslands