Þann 1. febrúar 2015 greiðist sérstök eingreiðsla kr. 20.000 m.v. fullt starf hverjum starfsmanni hjá Reykjavíkurborg sem var við störf í desember 2014. Upphæðin greiðist hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall í desembermánuði 2014.
Eingreiðslan kemur vegna þess að á samstarfsnefndarfundi þann 27. maí 2014 lagði Reykjavíkurborg fram yfirlýsingu um að allir starfsmenn Reykjavíkurborgar myndu njóta sambærilegra eingreiðslna á samningstímanum eins og kveðið var á um í samningi borgarinnar við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.
Eingreiðslan nær einnig til þeirra sem taka mið af kjarasamningi Eflingar og Reykjavíkurborgar, eins og einkarekinna leikskóla og Sorpu.
Þeir sem vinna á hjúkrunarheimilum eða stofnunum sem taka mið af ríkissamningi eiga von á sams konar 20.000 kr. eingreiðslu þann 1. apríl nk.