1. maí í Reykjavík

30. 04, 2015

Baráttufundurinn á Ingólfstorgi 1. maí Baráttufundur verður haldinn á Ingólfstorgi föstudaginn 1. maí á baráttudegi launafólks. Fundarstjóri verður Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR og ræðumenn verða þau Árni Stefán Jónsson, formaður SFR og Hilmar Harðarson, formaður Samiðnar. Safnast verður saman neðan við Hlemm á Laugavegi á horni Snorrabrautar um kl. 13.00 en kröfugangan leggur af stað kl. 13.30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngunni og einnig á Austurvelli. Gengið verður niður Laugaveginn, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Ræðumenn flytja örræður meðan á göngunni stendur. Á Ingólfstorgi verður haldinn baráttufundur. Fundurinn hefst kl. 14.10 og lýkur um kl. 15.00. Fundarstjóri verður Þórarinn Eyfjörð frá SFR og aðalræðumenn þeir Árni Stefán Jónsson og Hilmar Harðarson. Ræður verða táknmálstúlkaðar af Huldu Halldórsdóttur og milli atriða verða tónistaratriði flutt af Gradualekór Langholtskirkju, Ljótakór og Reykjavíkurdætrum.Gert er ráð fyrir að fundinum ljúki um 15.10 en þá er að drífa sig í Valsheimilið.Efling býður í kaffi í ValsheimilinuAð loknum hátíðarhöldunum býður Efling-stéttarfélag upp á kaffi í Valsheimilinu að Hlíðarenda -Vodafone höllinni. Fyrir þá sem ekki eru vissir um hvar Valsheimilið er skal tekið fram að ekið er í áttina að Hótel Loftleiðum og beygt til hægri eftir vegaskilti sem sýnir Valsheimilið. Félagsmenn Eflingar eru hvattir til að fjölmenna í gönguna og taka þátt í hátíðarhöldunum að öðru leyti. Njótum þess að fá okkur kaffi hjá Eflingu í Valsheimilinu að Hlíðarenda að hátíðarhöldunum loknum.

Munum að þetta er dagurinn okkar!!!!