Verkföllum frestað um fimm sólarhringa

25. 05, 2015

Forsvarsmenn samninganefnda VR, LÍV, Flóabandalagsins, StéttVest og Samtaka atvinnulífsins hafa náð samkomulagi um frestun verkfallsaðgerða, sem áttu að hefjast þann 28. maí næstkomandi, um fimm sólarhringa.Ekki verður upplýst um einstaka efnisþætti viðræðna aðila fyrr en að gengið hefur verið frá drögum að samningi sem lagðar verði fyrir samninganefndir félaganna. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 28. maí næstkomandi.Sjá hér skipulag verkfallsaðgerða að teknu tilliti til frestunar um fimm sólarhringa.