– segir Ingibjörg Ólafsdóttir, sviðsstjóri starfsendurhæfingar hjá Eflingu.
Það skiptir miklu máli að allir í heiminum tali sama tungumál þegar kemur að starfsendurhæfingu og geti reitt sig á að ákveðin stöðlun eigi við alls staðar, segir Ingibjörg Ólafsdóttir, sviðsstjóri starfsendurhæfingar hjá Eflingu. Hún segir að það sé mikilvægt að ná þessu samræmi því þá sé hægt að bera árangur saman við önnur lönd. Það kemur öllum til góða.Þann 21. maí sl. sótti Ingibjörg ásamt öðrum ráðgjöfum Virk hjá Eflingu ráðstefnu sem bar yfirskriftina Starfsendurhæfing og starfsgetumat. Var ráðstefnan liður í því að fræða ráðgjafa Virk um land allt um árangursríka starfsendurhæfingu samhliða markvissu matsferli.Vilja samræmi í matsferlinu á milli aðila og landaAð endurhæfingarferli geta komið margir aðilar eins og læknar, sjúkraþjálfarar og sálfræðingar sem hafa allir sitt tungumál þegar kemur að endurhæfingu. Þess vegna skiptir miklu máli að ná samræmi í matsferlinu á milli aðila og landa. Við notum ICF staðla í okkar starfsgetumati hjá Virk á Íslandi og höfum fengið jákvæða athygli utan úr heimi vegna þess og er það ánægjulegt ekki síst fyrir þær sakir að þjónustuþegar okkar njóta góðs af markvissara matsferli.Fræðsla mikilvægur hluti starfsinsÞað er mikilvægt að ráðgjafar í stéttarfélögum sem og starfsmenn Virk kynni sér nýjungar og hvað sé að gerast í starfsendurhæfingu í öðrum löndum. Reglulega efnir Virk til ráðstefna eins og þessarar þar sem fengnir eru erlendir fyrirlesarar í bland við íslenska til að kynna nýjungar í starfsendurhæfingu og hvað sé að virka og hvað ekki.Það er mjög öflug fræðsla á vegum VIRK, segir Ingibjörg. Auk ráðstefna séu haldnir tveir fræðsludagar tvisvar á ári þar sem ráðgjafar og starfsmenn Virk starfsendurhæfingarsjóðs fá alls konar fræðslu tengda líkamlegum og andlegum hindrunum. Hún segir mikið lagt upp úr fræðslu ráðgjafa og það sé ekki síst til að styðja þá í starfi.Ráðgjafar Virk hjá Eflingu á ráðstefnunni Starfsendurhæfing og starfsgetumat.Erum eins og köngulóStarf okkar er mjög flókið þar sem við erum hugsuð sem könguló þar sem við höldum utan um alla þræði okkar þjónustuþega og erum í sambandi við vinnustað ef viðkomandi er í ráðningarsambandi, heilsugæslu, meðferðaraðila, lækna og fleiri. Hún segir að starf ráðgjafa sé fyrst og fremst fólgið í því að styðja þjónustuþega í endurhæfingu með það fyrir augum að aðstoða þá út á vinnumarkaðinn að nýju.Okkar starf er líka í sífelldri þróun, segir Ingibjörg. Maður mætir aldrei í sama starf dag frá degi. Það er alltaf verið að bæta þá faglegu vinnu sem er í gangi og við þurfum að vera í takti við nýjungar. Það gerir vinnu okkar ennþá markvissari og faglegri.Horfum á styrkleika fólksÍ starfsendurhæfingu í dag er útgangspunkturinn að meta starfsgetu einstaklinga út frá því hvað hann getur unnið við í stað þess að einblína á hvað hann geti ekki. Þetta sé alltaf spurning um að finna viðeigandi starf sem einstaklingurinn treystir sér til að vinna miðað við andlega og líkamlega getu.Það er mikilvægt að styðja við fólk sem hefur getu og vilja til að komast aftur út á vinnumarkaðinn og það að staðla ferli í starfsendurhæfingu er hluti af því að samræma þennan feril á milli fagaðila og landa. Þannig fæst markvissara matsferli og betri þjónusta, segir Ingibjörg að lokum.