Nýr kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga

20. 11, 2015

Flói_Sambandið_samningur_201115Skrifað var undir nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga föstudagskvöldið 20. nóvember. Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019. Samningurinn felur í sér eftirfarandi launabreytingar:• Við upphaf samnings eða 1. maí 2015 hækka launataxtar um 25.000 kr. en að lágmarki um 7,7%• Þann 1. júní 2016 hækka launataxtar um 15.000 kr. en að lágmarki um 5,5%.• Þann 1. júní 2017 kemur inn ný launatafla þar sem bil á milli launaflokka verður leiðrétt í 1,1% á milli flokka, til samræmis við þá niðurstöðu sem samið var um 1. maí 2014.• Þann 1. júní 2018 hækka launataxtar um 2%.• Sérstök eingreiðsla kemur 1. febrúar 2019 að upphæð kr. 42.500, miðað við þá sem eru í fullu starfi í desember 2018 og enn í starfi í janúar 2019. Greitt er hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi.• Tekjutryggingin hækkar um 86.000 kr. á samningstímanum og verður komin í 300.000 kr. 1. maí 2018.Þá hækkar desemberuppbót um rétt innan við 21% á samningstímanum og fer í 113.000 kr. í lok samningstímans, og orlofsuppbót hækkar um 21,5% og verður 48.000 kr í lok samningstímans.Atkvæðagreiðsla hefst 26. nóvember og atkvæði þurfa að hafa borist fyrir þriðjudaginn 11. desember nk. kl. 12.00 en síðar þann dag verður niðurstaðan kynnt.Hægt er sjá samninginn í heild sinni hér.