ATKVÆÐAGREIÐSLA UM NÝJAN KJARASAMNING VIÐ SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA

23. 11, 2015

Atkvæðaseðlar ásamt kynningarbæklingi um nýjan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga verða sendir á félagsmenn í þessari viku en niðurstöður munu liggja fyrir 11. desember næstkomandi. Hægt er að nálgast helstu upplýsingar um samninginn hér.Félagið hvetur félagsmenn til þess að nýta atkvæðisrétt sinn.Kynningarfundir um kjarasamninginn verða haldnir á skrifstofu Eflingar-stéttarfélags, Sætúni 1, þriðjudaginn 1. desember kl. 13.00 og miðvikudaginn 2. desember kl. 16.00.