Flóafélögin Efling, Hlíf og VSFKAtkvæði voru í dag talin í póstatkvæðagreiðslu Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar og VSFK um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu – SFV sem undirritað var þann 20. október sl. Samkomulagið var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða eða rúmlega 90% atkvæða. Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019.Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi:Já sögðu 393 eða 90,6% þeirra sem atkvæði greidduNei sögðu 40 eða 9,2%Auðir seðlar og ógildir voru 1.Samkvæmt þessum úrslitum er samkomulagið samþykkt. Á kjörskrá voru alls 1.873 félagsmenn. Atkvæði greiddu 434 eða 23,2%.Nánari upplýsingar eru á heimasíðum félaganna um innihald samkomulagsins, sjá hér á heimasíðu Eflingar.