Kristján Bragason, höfundur greinarinnar er framkvæmdastjóri Norrænna Samtaka starfsfólks í hótel, veitinga og ferðaþjónustugreinum.Stafræn bylting sem á ensku nefnist digitalisation er hugtak sem er fyrirferðamikið í norrænni þjóðfélagsumræðu þessa dagana, en margir halda á lofti kostum hennar á meðan aðrir benda á vankantana. Þeir sem eru jákvæðastir telja að stafræna byltingingin muni í ljósi betri upplýsingamiðlunar, aukins gagnsæis, auðveldari samskipta, betri nýtingu gæða og minni mengunar skila sér í jafnara, réttlátara, lýðræðislegra og sjálfbærara samfélagi. Á móti telja aðrir að þessi þróun muni leiða til margs konar neikvæðra afleiðinga. Þar má nefna mikla fækkun starfa, lakari laun og aðbúnað, lægri skatta og minni ríkisumsvif, aukinn tekjuójöfnuð, húsnæðisvanda og aukna samkeppni einstaklinga. Þá eru líkur á að dragi úr samstöðu og eftirlit allt muni aukast auk þess sem óskýr mörk verði á milli vinnu og fjölskyldulífs. Allt eru þetta þættir sem munu grafa undan velferðarkerfinu.Stafræn bylting og afleiðingar hennar er ein stærsta áskorun sem norræn verkalýðshreyfing stendur frammi fyrir hvað varðar breytingar á vinnumarkaði og áhrif hennar á kjör og aðbúnað launafólks í framtíðinni. Verkalýðshreyfingin hefur reynt að nálgast málið með hlutlæga sýn á það og margir innan hreyfingarinnar sjá bæði kosti og galla við þessa byltingu. Hlutverk okkar er að benda á ógnirnar sem beinast að launafólki og vara við aukinni misskiptingu og veikara velferðarkerfi.Deilihagkerfið setur þrýsting á kjör og aðbúnað launafólksStafræna byltingin hefur haft mikil áhrif á ferðaþjónustuna, bæði hvað varðar hegðun ferðamanna og framboð á þjónustu. Fólk getur nálgast allar upplýsingar um vörur og þjónustu á netinu, fólk skipuleggur og bókar ferðalög sín þar, viðskiptavinir skiptast á hugmyndum, vörum og þjónustu á netinu, og fólk gefur álit sitt á gisti-, veitinga- og ferðamannastöðum á netinu.Að deila hagkerfinu með öðrumUndanfarin ár hefur mátt sjá „deilihagkerfið“, sem er hluti af stafrænu byltingunni, ryðja sér til rúms í gisti- og ferðaþjónustu. Deilihagkerfi felst í því að fólk deilir eignum sínum eða þjónustu tímabundið með öðrum, annaðhvort ókeypis eða gegn gjaldi, sem ýmist getur falist í fjárgreiðslu eða annars konar þóknun. Einstaklingar bjóða til dæmis fram heimili sín til gistingar og veitingaþjónustu, t.d. Airbnb og AirDine, bíla sína sem samgöngumáta, t.d. Uber og BlaBlaCar, og þekkingu sína á heimastað sínum við leiðsögn, t.d. Greeters og GoRunningTours.Fólk hefur alla tíð deilt og skipst á vörum og þjónustu, svo þetta er ekki nýtt fyrirbæri. Með stafrænu byltingunni hefur viðskiptum af þessu tagi þó verið lyft upp á nýtt stig. Orðinn er til vettvangur sem gengur í takt við framboð og eftirspurn og viðskipti geta átt sér stað með auðveldari hætti en áður hefur þekkst.Nú þegar áhrif á norrænan vinnumarkaðAukin umsvif deilihagkerfisins hafa þegar haft umtalsverð áhrif á norrænan vinnumarkað. Þau störf sem skapast vegna deilihagkerfisins eru oftast framkvæmd í verktöku eða ekki gefin upp til skatts. Það er vel þekkt staðreynd að stór hluti deilihagkerfisins á Norðurlöndunum er hluti af svarta hagkerfinu og fæstir einstaklingar sem bjóða ferðamönnum eignir sínar eða þjónustu á forsendum deilihagkerfis uppfylla lög og skyldur sem skráð fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa að fylgja svo sem skatta og gjöld, tryggingar, heilbrigðismál og aðgengi. Slíkt skekkir samkeppnisstöðuna, ógnar afkomu hefðbundinna ferðaþjónustufyrirtækja og setur þrýsting á launa- og starfskjör ákveðinna hópa.Umfangsmikil kaup fyrirtækja hækka húsnæðis- og leiguverð í þéttbýliÞá hafa umfangsmikil kaup einstaklinga eða fyrirtækja á húsnæði í þéttbýli í þeim eina tilgangi að leigja það út til ferðamanna á netinu leitt til hækkunar á húsnæðis- og leiguverði á mörgum þéttbýlisstöðum á Norðurlöndunum, s.s. Reykjavík, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Fyrir lág- og millitekjufólk verður því sífellt erfiðara að tryggja sér húsnæði og því neyðist það til að leita í úthverfin, sem hefur í för með sér að ferðatími til og frá vinnu lengist.Það eru augljóslega margvísleg tækifæri, á borð við betri upplýsingar, einfaldari samskipti og betri þjónustu, sem hafa skapast í kjölfar stafrænu byltingarinnar. Á hinn bóginn á stafræna byltingin sér neikvæðari hliðar sem norræna verkalýðshreyfingin þarf að mæta af krafti til að koma í veg fyrir hrun velferðarkerfisins. Markmiðið er ekki að stöðva stafrænu byltinguna, heldur þurfa aðilar vinnumarkaðarins i samvinnu við opinbera aðila að tryggja að stafræna byltingin leiði af sér hagvöxt, framleiðni, betri störf, vel menntað vinnuafl, styttri vinnutíma og félagslegan og efnahagslegan jöfnuð.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.